Rockumentary um Airwaves

Heimildamynd um bestu tónlistarhátíð í heimi, Iceland Airwaves. Myndin er framleidd af Saga Film og leikstjóri er Guðjón Jónsson.

Prinspóló þrusar út nýju efni

Þær gleðilegu fréttir bárust í gær að techno hljómsveitin Prinspóló sendi frá sér splunkunýtt lag OG myndband þar að auki. „Föstudagsmessa“ heitir lagið, gjörið þið svo vel:

Prinspóló á Facebook

Skilaboð frá ritstjóra

Eins og glöggir lesendur hafa án efa tekið eftir hefur verið frekar lítið um að vera hér á Rjómanum undanfarið. Er þá helst um að kenna hversu önnum kafin ritstjórn er í námi og starfi sem gerir það að verkum að við náum ekki að fylgjast eins vel með stefnum og straumum í tónlistarlífinu né að finna tíma til að setjast niður og rita eitthvað gáfulegt á þennan ágæta vef okkar.

Einnig hefur talsverður tími farið í að hanna nýjan og betri vef og hefur það ferli alls ekki gegnið áfallalaust. Vonandi sér þó fyrir endan á því og ætti nýr vefur að líta dagsins ljós á komandi vikum.

Við byðjumst velvirðingar á færluleysinu og vonumst til að ná aftur réttum takti með hækkandi sól og nýjum og glæsilegum vef.

Ekki vil ég þó skilja við ykkur að sinni án þess að skella eins og einu lagi á fóninn. Hér er nýjasta nýtt frá Oberhofer, tilkomumikið listapopp eins og það gerist best.

Oberhofer – HEART

Sólstafir með myndband og tónleika

Rokkhljómsveitin Sólstafir sendi frá sér tvöföldu plötuna Svartir Sandar á haustmánuðum síðasta árs. Platan hefur fengið einróma lof gagnrýnenda, náð inn á metsölulista á Íslandi og Finnlandi, verið á toppi fjölda lista yfir bestu rokkplötur ársins 2011 hér heima sem og erlendis og var til að mynda valin besta íslenska platan árið 2011 af Morgunblaðinu.

Í dag var fyrsta myndbandið við lag af plötunni frumsýnt á þýsku Metal Hammer síðunni, en myndbandið er við lag númer tvö á fyrri plötunni – „Fjara“. Myndbandið gerðu Bowen Staines og Gunnar B. Guðbjörnsson en dúóið ættu íslenskir tónlistaráhugamenn að kannast við þar sem þeir eru mennirnir á bak við Airwavesmyndina Where’s the Snow?! og vefþættina Sleepless in Reykjavík svo fátt eitt sé nefnt. Í myndbandinu kennir ýmissa grasa; hefðbundið íslenskt landslag kemur við sögu en nær að halda sér klisjulausu með viðbótum eins og blóðugum uppvakningum og skeggjuðum pípureykingarmönnum. Rjóminn er að minnsta kosti hrifinn, myndbandið má sjá hér að neðan.

Þann 9. febrúar munu Sólstafir svo ásamt fjölda gesta – í fyrsta og eina skipti – flytja plötuna í heild sinni og stefnir allt í hörku tónleika. Tónleikarnir fara fram í Gamla bíó (Íslensku óperunni) og má nálgast miða hér.

 

Árslisti lesenda 2011

Þá er komið að því. Árslisti lesenda Rjómans er loksins tilbúinn. Fjöldinn allur af tillögum voru sendar inn og þrátt fyrir að tilnefningar voru fjölbreyttar þá voru úrslitin nokkuð afgerandi bæði á innlenda og erlenda listanum.

Líkt og á aðallista Rjómans þá stóð Bon Iver upp úr sem augljós sigurvegari á erlenda listanum en Mugison var jafnvel enn vinsælli hjá lesendum, og fékk nærri því helmingi fleiri stig en GusGus sem lentu í öðru sætinu á þeim íslenska.

 

Bestu plötur ársins að mati lesenda Rjómans

Íslenskar plötur

1. Mugison – Haglél
2. GusGus – Arabian Horse
3. HAM – Svik, harmur og dauði
4. Sóley – We Sink
5. Of Monsters And Men – My Head Is An Animal
6. Snorri Helgason – Winter Sun
7. Sólstafir – Svartir sandar
8. Sin Fang – Summer Echoes
9. Nolo – Nology
10. Björk – Biophilia

Erlendar plötur

1. Bon Iver – Bon Iver
2. PJ Harvey – Let England Shake
3. Radiohead – King of Limbs
4. tUnE-yArDs – W H O K I L L
5. The Black Keys – El Camino
6. Fleet Foxes – Helplessness Blues
7. Feist – Metals
8. Florence and the Machine – ceremonials
9.-10. Kurt Vile – Smoke Ring For My Halo
9.-10. St. Vincent – Strange Mercy

Úlfur Úlfur og Emmsjé Gauti með myndband

Íslenska rapphljómsveitin Úlfur Úlfur hefur verið iðin við að pumpa út efni bæði í hljóði og mynd og tónleikahald allt frá stofnun sveitarinnar á síðasta ári. Sveitin var stofnuð af þeim Arnari Frey Frostasyni og Helga Sæmundi Kaldalón Guðmundssyni eftir slit hljómsveitarinnar Bróðir Svartúlfs en Bróðir Svartúlfs stóðu uppi sem sigurvegarar Músíktilrauna fyrir nokkrum árum og hreif rímnaflæði Arnars Freys og rokk/popp grúv sveitarinnar bæði dómnefnd og landann með sér.
Nýja verkefnið, Úlfur Úlfur, einblínir þó meira á rapp/hip-hop senuna og ásamt Þorbirni Einari hefur sveitin komið út sinni fyrstu plötu. Ber hún heitið Föstudagurinn Langi. Voru drengirnir afar gjafmildir og gáfu plötu sína aðdáendum og áhugasömum á heimasíðu sinni, Úlfurúlfur.com.

Fyrir stuttu hélt sveitin frumsýningarpartý á myndbandi við lagið Á Meðan Ég Er Ungur en þar fá þeir þar til liðs við lagasmíðarnar rapparann Emmsjé Gauta og Óróa-stjarnan Atli Óskar Fjalarson sér um leikræna túlkun í aðalhlutverki myndbandsins. Gjössovel!

Myndband frá Orphic Oxtra

Það er komið myndband við lagið Skeletons Having Sex on a Tin Roof með hressustu hljómsveit Íslands, súrbalkankrökkunum í Orphic Oxtra. Lagið er lauslega byggt á lagi með sama nafni eftir hljómsveitina Swords of Chaos. Lagið er hinni frábæru plötu „Kebab Diskó“, sem kom út í fyrra og hefði alveg mátt vera á einhverjum listum yfir besta eitthvað. Myndbandið sem er gert af Bergrúnu Snæbjörnsdóttur og Sigrúnu Jónsdóttur er skemmtilega súrt og skemmtilegt á súran hátt eins og við mátti búast.

At The Drive-In saman á ný

Ein vinsælasta síð-harðkjarnasveit seinni tíma, At The Drive-In, sendu nýverið út tilkynningu um að sveitin væri nú komin saman aftur eftir að hafa lagt upp laupana árið 2001. Hljómsveitin var stofnuð árið 1993 í El Paso í Texas fylki í Bandaríkjunum af þeim Cedric Bixler-Zavala og Jim Ward en flestir ættu að þekkja sveitina með viðbættum Omar Rodriquez-Lopez, Paul Hijonos og Tony Hajjar. At The Drive-In sendu frá sér fimm EP-plötur og þrjár breiðskífur en þekktasta plata sveitarinnar var án efa þeirra síðasta, Relationship of Command, frá árinu 2000 sem að margra mati er talin ein áhugaverðasta rokkskífa síðustu áratuga.

Þessi endurkoma kemur líklega mörgum aðdáendum á óvart en eftir samstarfsslit At The Drive-In urðu til hljómsveitirnar Sparta og The Mars Volta en sannlega má segja að þeirri síðari hafi gengið mun betur á markaðinum en þeirri fyrrnefndu sem leidd var af Jim Ward á meðan Bixler-Zavala og Rodriquez-Lopez leiddu hina margrómuðu The Mars Volta.

Aðdáendur At The Drive-In geta nú loks þurrkað tárin og hjartasviðann um að hugsanlega bera aldrei sveitina augum og glaðst verulega. Fylgist með á heimasíðu sveitarinnar en enn hafa engar dagsetningar né plötuútgáfur verið tilkynntar.

 

 

Ragnar Sólberg nýr gítarleikari Pain of Salvation

Í dag tilkynnti sænska progg-rock/metal sveitin Pain of Salvation um val á nýjum gítarleikara fyrir komandi tónleikaferðalag sveitarinnar í Evrópu. Hljómsveitin hefur undanfarna mánuði tekið við umsóknum hvaðanæva úr heiminum fyrir stöðu gítarleikara en samkvæmt heimasíðu sveitarinnar skar sveitin niður í um 100 listamenn áður en hún bauð fimm gítarleikurum í heimsókn. Var þar mættur einn Svíi, einn Englendingur, einn Frakki, einn þjóðverji og eitt stykki Íslendingur. Íslendingurinn Ragnar Sólberg Rafnsson (Zolberg) bar stóð fremstur meðal jafningja eftir þungar áheyrnarprufur og tekur stað Johan Hallgren sem gítarleikari Pain of Salvation. Hallgren ákvað að yfirgefa sveitina til að einbeita sér að fjölskyldulífinu í Svíþjóð eftir síðustu tónleikaferð sveitarinnar með sænsku risunum Opeth. Hafði Hallgren verið meðlimur POS frá árinu 1998. Hljómsveitin hefur þá verið til í ansi mörgum myndum allt frá árinu 1984 og er aðeins einn upprunalegur meðlimur eftir í herbúðunum. Sá er söngvarinn og gítarleikarinn Daniel Gildenlöw. Það verða þá þeir Daniel Gildenlöw, trommarinn og fransmaðurinn Léo Margarit og Ragnar Sólberg Rafnsson sem munu þeysast um Evrópu frá miðjum febrúar þetta árið.

Má telja þetta stórt stökk fyrir íslenskan tónlistarmann en Ragnar hefur verið að gera það gott frá unglingsárum hér á landi sem erlendis með hljómsveit sinni Sign en hefur undanfarin ár einbeitt sér að sólóverkefni sínu í Svíþjóð þar sem hann er búsettur ásamt unnustu sinni og börnum. Sign aðdáendur sem aðdáendur Pain of Salvation geta glaðst en þó má telja öruggt að Ragnar hafi engan veginn sagt skilið við fyrrum stöðu sína í Sign sem skýtur upp höfði sínu án vandkvæða hér á landi sem erlendis enn þann dag í dag.

Mynd: www.echte-leute.de/

 

Dýrðin, Fivebellies og Gímaldin í kvöld og föstudag

Það hefur lítið farið fyrir Dýrðinni undanfarið, en hljómsveitin snýr nú aftur og leikur á tvennum tónleikum í vikunni. Hljómsveitin hefur um langt árabil verið eini fulltrúi Íslands í hinni svokölluðu Twee senu þótt hún hafi reyndar tekið nokkrum breytingum gegnum árin og sé núna langt í frá jafn sæt og krúttleg og í upphafi. Eiginlega er þetta bara orðið helvítis pönk, en textarnir fjalla ennþá um geimverur, mörgæsir, bleyjur og rafeindahraðla.

Gímaldin gaf nýverið út ljómandi fína plötu ásamt félögum sínum, en Gísli Magnússon kemur í þessi skiptin fram á eigin spýtur, einn og óstuddur, og mun mögulega leika efni af skífunni sem ber heitið Þú ert ekki sá sem ég valdi, og/eða af plötunni Jólagestir Gímaldins, sem er að hans eigin sögn „vínylplata með þremur hliðum“.

Fivebellies er tökulagasveit sem inniheldur nokkra valinkunna pönkara af gamla skólanum. Þeir hyggjast rústa pleisinu með ábreiðum af t.d. Dead Kennedies, Buzzcocks, Killing Joke, Ramones og  Human League jafnvel.

Það stefnir því allt í stórundarlega tónleika í kvöld, þriðjudaginn 3. janúar á Bakkus kl. 21:30 og á föstudaginn 6. janúar á Dillon á sama tíma. Aðgangur ókeypis.

Facebook viðburður 1 | Facebook viðburður 2

Árslisti Rjómans 2011

Stóra stundin er runnin upp. Eftir langa umhugsun hafa Rjómverjar valið þær 20 plötur innlendar og erlendar sem standa upp úr á árinu sem nú er að líða. Tónlistarárið 2011 var fjölbreytt og komu margar plötur til greina en eftirfarandi plötur þóttu þó bera af að mati ritstjórnar Rjómans.

Rjóminn þakkar lesendum sínum samfylgdina á árinu sem nú er að líða og óskar þeim um leið farsælda á nýju ári.

Árslisti Rjómans gjörið svo vel:

 

Fylgist svo með Rjómanum því á næstu dögum mun árslisti lesenda líta dagsins ljós

Eldberg gefur út sína fyrstu plötu

Hljómsveitin Eldberg gaf nýverið út sína fyrstu hljómplötu sem einfaldlega ber nafn sveitarinn, en sveitin hefur verið starfrækt frá lokum árs 2008.

Platan hefur fengið góða dóma hér á landi og gaf Dr. Gunni henni t.a.m. 4 af 5 stjörnum. Platan hefur fengið góðar viðtökur á erlendum markaði og fékk hljómplatan t.d. gríðarlega góða umfjöllun í iO Pages magazine.

Eldbergið skrifaði undir samning hjá Sílenska útfgáfurisanum Mylodon Records sem gefur plötuna út á geisladisk. Mylodon Records er stæðsta útgáfufyrirtæki progg rocks í heiminum og er plata Eldbergs strákanna ein af þeirra stærstu útgáfum þetta árið og það í sérstökum viðhafnarbúningi. Platan hefur selst gífurlega vel um allan heim og hefur vinylútgáfan, sem inniheldur frítt niðurhal af hljómplötunni af gogoyoko, vakið mikla lukku meðal tónlistaráhugamanna.

Platan er fáanleg í öllum helstu hljómplötuverslunum landsins.

Eldberg – Ég er lífsins brauð

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.