Dungen – Ta Det Lugnt

Dungen - Ta Det Lugnt
Einkunn: 4.5
Utgafuar: 2005
Label: Subliminal Sounds

Ég leyfi mér að kasta fram sprengju – Gustav Ejstes er séní. BÆNG.

Ah, Svíþjóð. Besta land í heimi? Erfitt að segja. Svíar myndu halda því fram. Þeir hafa svo sem nokkuð til síns máls. Svíþjóð hefur alið ýmislegt gott af sér: IKEA, Volvo og Saab í bizness – Zlatan, Björn Borg og Kallur tvíburarnir í íþróttum (mmm, Kallur systur) – ABBA, Soundtrack of our Lives og Sahara Hotnights í tónlist meðal annarra. En böggull fylgir skammrifi. Svíar eru óþolandi meðvitaðir um eigið ágæti og líta á sjálfa sig sem über-Skandínava, æðri en restin og líta niður á okkur hin – með sósíalískri samvisku og meðaumkun að sjálfsögðu.

Hljómsveitin Dungen er hugsmíð Svíans Gustav Ejstes. Ég leyfi mér að kasta fram sprengju – Gustav Ejstes er séní. BÆNG. Dungen spila nokkurs konar sýrurokk í anda Byrds, Jefferson Starship og fleiri hljómsveita með asnalegum, löngum nöfnum. Einkenni sýrurokks eru mörg hljóðfæri í uppsetningu og mikið af sólóum sem eru útflúruð og grand. Gustav Ejstes spilar á öll hljóðfærin á Ta Det Lugnt. Öll. Hann virðist vera jafnvígur á píanó, gítar, trommur, bassa, þverflautu, fiðlu, orgel, selló (listinn er ekki tæmandi NB) osfrv. Þegar Dungen spila á tónleikum þá hóar Gustav í félaga sína en á plötunni þá spilar hann allt sjálfur.

Ta Det Lugnt (þýð. Taktu því rólega) byrjar hressilega með lögunum „Panda“, „Festival“ og „Du e för fin för mig“ en þau eru áheyrilegustu lögin. Seinna á disknum verða þau sýrukenndari og sum lögin eru næstum aðeins eitt stórt sóló – aðeins of mikið fyrir minn smekk. En samt getur maður ekki annað en dást af Gustav fyrir að ná öllum þessum svakalegu sólóum, á öll hljóðfærin.

Textarnir eru allir á sænsku. Ef textar eins og:

„Du er väcker, slock min törst með rosa lippar, piba eller pilsner“ (þýð. „þú ert falleg, slökktu þorsta minn með bleikum vörum, pípu eða bjór“)

heilla ekki þá þarf að snúa sér annað.

Hvernig æxlaðist að hann varð þessi vél sem hann er? – Gustav ólst upp í smábæ í Mið-Svíþjóð. Eins og margir á hans aldri (hann er 26 ára gamall) þá hreifst hann af hip-hoppi og rappi um 17 ára aldur. Þegar hann byrjaði að gera sína eigin tónlist og rapp þá leitaði hann í plötusafn föður síns til að finna góð „sömpl“. Hann endaði á að fíla sýrurokkið betur en hip-hoppið og þar sem hann hafði ekkert betra að gera á sveitabænum þá æfði hann einfaldlega sig uppí að geta klárað dæmið sjálfur.

Aðeins verður að minnast á undursemdir netsins. Ta Det Lugnt kom út hjá litlu útgáfufyrirtæki – í Stokkhólmi – í 500 eintökum – á vínyl. Samt náði hann að komast á lista yfir bestu plötur síðasta árs á mörgum stöðum. Segið svo að netvæðing tónlistarinnar hafi aldrei skilað sér til tónlistarmanna, ha Metallica? Fávitar.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. The Boy Least Likely To – The Best Party Ever
  2. Hairdoctor – Shampoo
  3. Jamie T – Panic Prevention
  4. Skúli Sverrisson – Sería
  5. Ruddinn – Ruddinn

3 Athugasemdir

Halli  on nóvember 29th, 2005

Þeir eru frábærir læv og platan er góð, en hún heitir “Ta Det Lugnt”, einsog lagið.

Ari  on nóvember 29th, 2005

Búinn að laga þetta. Ótrúlegt að enginn hafi séð þetta áður.

Ég öfunda þig ekkert smá að hafa séð þá læv.

Jón  on nóvember 30th, 2006

Hef séð þá læv og djöfulsins leiðindi var það. Bý í Svíþjóð og verð að segja að tónlistarlífið er miklu betra heima.

Tjáið ykkur um málið