Brett Anderson – Brett Anderson

by Rjóminn on ágúst 17, 2007

Brett Anderson - Brett Anderson
Einkunn: 2
Utgafuar: 2007
Label: Drowned in Sound

Ástin er dauð

Brett Anderson er betur þekktur sem aðalmaður og söngvari bresku hljómsveitarinnar Suede (Þekkt í Bandaríkjunum undir nafninu The London Suede). Brett hefur einnig verið í bandinu The Tears. The Tears var mjög óvænt samstarfsverkefni milli Brett og Bernard Butler. (Bernard er fyrrverandi meðlimur Suede og fóru sögur um að þeir tveir væru svarnir óvinir eftir af Bernard sagði skilið við Suede er þeir voru í miðjum upptökum á annarri plötunni sinni Dog Man Star). The Tears hafa gefið út eina plötu, Here come The Tears, og er ekki víst hvort þær verði fleiri.

Suede með Brett Anderson innanborðs hefur gefið út þónokkurt magn platna og ef ég tel rétt þá eru þær orðnar 5 talsins plús ein b-hliða plata og ein „singles“ plata. Fyrsta og önnur plata Suede (Suede og Dog Man Star) eru að mínu mati tær snilld og ættu þær að vera skyldueign á öllum heimilum. Aðrar plötur Suede eru ágætar en eftir að Bernard hætti í Suede fannst mér alltaf eins og eitthvað vantaði.

Ég hef verið mikill aðdáandi Brett Anderson allt frá því ég heyrði og sá hann fyrst árið 1993 eða 4 (15 ára) syngjandi „Animal Nitrate“ klæddur leðurbuxum og leðurjakka (mjög þröngum, auðvitað). Brett var flottur, hann var óheflaður og geislandi af einhverjum skrýtnum, óútskírðum kynþokka… stundum karlmannlegur og stundum kvenlegur.

Video-ið við „Animal Nitrate“ er lýsandi dæmi hvernig Suede var og sýnir Brett (og Bernard) í sínu besta formi.

Þessi fyrsta sólóplata Brett er því miður ekkert í áttina að „Animal Nitrate“. Brett er hér í rólegheitunum að velta sér uppúr lífinu. Hann er á persónulegu nótunum, syngur um gamlar ástir, kærustur og föður sinn. Við fyrstu hlustun fannst mér hann vera í ástarsorg og því bitur út í lífið.
Textarnir eru að mjög Brett-legir og hann gerir þá vel eins og áður. Lögin eru öll mjög falleg en það er bara ekki nóg.

„Love is Dead“ er fyrsta lag plötunnar og er það lag sem náði að heilla mig mest af þeim 11 lögum sem eru á plötunni.

Love is Dead

Önnur lög sem eru ágæt eru: „One Lazy Morning“ og „Song for My Father“

Ég er búin að hlusta á þessa plötu þó nokkrum sinnum og ég kemst alltaf að sömu niðurstöðu þegar hún er búin. Hún skilur ekkert eftir sig (nema þá kannski smá þunglyndi og biturð). Það vantar kraftinn og viðveruna, Brett er þarna en samt ekki. Hann er að gefa af sér en ekki nóg. Hann ætti að mínu mati snúa sér aftur að Suede eða The Tears, hann virkar betur í teymi.

Þessi plata er aðeins fyrir hörðustu aðdáendur Brett og ég mæli frekar með plötum Suede eða The Tears.

The Tears – refugees

Tengdar færslur:

  1. The Tears – Here Come The Tears
  2. Camera Obscura – Let’s get out of this Country
  3. Aqueduct – Or Give Me Death
  4. Panda Bear – Person Pitch
  5. Animal Collective – Feels

3 comments

Ég er alveg að fíla þessa skífu. Tel að Brett sé fyrst og fremst meðvitaður um þennan afslappaða gír sem einkennir plötuna – hann hafi bara verið svona stemmdur kallin. Strengir eru líka áberandi og þetta er þægileg skífa – næstum því síngalong en laus við að vera þunnildisleg. Brett er þarna aðeins að prófa nýja hluti og ég er á því að honum takist það vel upp. Menn þurfa auðvitað að slappa aðeins af af og til eftir langan og góðan feril, líta um öxl og kannski horfa innávið. Er ekki Brett bara að gera það á þessari skífu? Ég er sáttur og vona að hann gefi meira sólóefni út í framtíðinni en rækti um leið Suede og svo samband sitt við Butlerinn. Annars bara bestu kveðjur, þið Rjómamenn, eruð að gera góða hluta.

by Svanur Már Snorrason on Sunnudagur 19. ágúst 2007 at 21:50:01. #

Ég ætla nú ekki að kommenta hér um þessa eflaust ágæti skífu, en mig langar að velta fram þeirri spurning hvort það væri ekki sniðugt að opna spjallborð rjómans? Þar sem indí-boltarnir gætu spjallað um tónlist fram eftir öllu.

Takk fyrir frábæra síðu!

by Sævar on Mánudagur 20. ágúst 2007 at 14:49:41. #

Það er í skoðun hjá okkur að koma upp eins konar spjallborði eða netsamfélagi í kringum Rjómann. Allar slíkar hugmyndir hafa hins vegar legið á ís þar sem við vorum að skipta um server og fleira sem tölvufróðari menn en ég vita sitt hvað um.

Takk fyrir að lesa!

by Árni Viðar on Mánudagur 20. ágúst 2007 at 22:09:49. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.