Sunset Rubdown – Random Spirit Lover

Einkunn: 4.5
Utgafuar: 2007
Label: Jagjaguwar
Spencer Krug fer um víðan völl á útpældu meistaraverki
Fáir tónlistarmenn hafa verið eins ofvirkir undanfarin ár eins og Kanadamaðurinn Spencer Krug. Hann er líklegast þekkastur sem hljómborðsleikari og annar söngvari hinnar ágætu Wolf Parade en hefur auk þess verið ansi duglegur að senda frá sér hinar ýmsu aukaafurðir. Spencer á þannig hlut í bæði Swan Lake og Frog Eyes en hans aðal-hliðarverkefni hefur verið sveitin Sunset Rudown og frá árinu 2005 hefur sú sveit sent frá sér þrjár plötur og einni EP betur.
Sunset Rubdown byrjaði sem sólóverkefni Krug þar sem hann fékk útrás fyrir öðruvísi tónlist en Wolf Parade fékkst við. Þannig var fyrsta skífan, Snake's Got a Leg (2005), einherjaskífa en brátt sánkaði Krug fleiri liðsmönnum að sér. Með hinni ævintýralega góðu Shut Up I Am Dreaming (2006) var svo ljóst að Sunset Rubdown var meira en bara eitthvað hliðarverkefni, enda skaut Krug þar félögum sínum í Wolf Parade ref fyrri rass. Það kom því líklega flestum á óvart þegar tilkynnt var um þriðju plötuna úr ranni Sunset Rubdown fyrr á árinu enda slík útgáfugleði fáheyrð nú á dögum.
Random Spirit Lover kom út nú á haustdögum og var rokkaðri en fyrri verk sveitarinnar, Slíkt heyrst strax í fyrsta laginu „The Mending of the Gown" en hamrandi píanó og drífandi gítarleikurinn í laginu gefur strax tóninn fyrir það sem koma skal. Síðan rekur hvert eðallagið annað þar sem sveitin skiptir áreynslulaust á milli rokkgírsins og þess rólega, stundum í einu og sama laginu. Tvö ágæt mp3-dæmi gefur Jagjaguwar útgáfan netverjum:
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Eins frábær og fyrri hluti plötunnar er þá springur sveitin virkilega út á seinni hluta hennar. Hið epíska „Stallion" undirbýr hlustendann fyrir „For the Pier (and dead shimmering)", gullfallegt lag sem er ekki síst eftirminnilegt fyrir skemmtilega notkun á hljómhörpu (e. autoharp) en leynir svo á sér með ýmsum kaflaskiptingum. Besta lag plötunnar er „The Taming of the Hands that Came Back to Live" sem er ómótstæðilega grípandi og líklega er eitt langbesta lag ársins. Sunset Rubdown rokkar svo úr eyrum blæðir í „Trumpet, Trumpet, Toot! Toot!" áður en hún lokar plötunni með hinu rólega og fallega „Child-Heart Losers".
„The Taming of the Hands that Came Back to Live" á tónleikum:
Þrátt fyrir að sveitin fari um víðan völl á plötunni rennur hún ótrúlega vel saman og lögin virka í raun sem ein heild sé platan spiluð í gegn. Sveitin hafði víst ákveðið uppröðun laga áður en upptökur hófust þannig að allar skiptingar á milli þeirra eru útpældar. Þetta heppnast einstaklega vel og er oft á tíðum hrein unun á að hlýða hvernig sveitin skiptir úr einu lagi í annað.
Á Random Spirit Lover hafa Spencer og félagar nærri farið fram úr sjálfum sér og skila af sér frábærri plötu sem er útpæld en alltaf frumleg og fersk. Random Spirit Lover er eina plata þessa árs sem gæti talist til meistaraverka, en við skulum leyfa tímanum að leiða það í ljós, en hún hefur flest það til að bera sem þarf. Hér var vissulega freistandi að draga fram hina fágætu 5.0 einkunn en það vantar kannski rétt herslumuninn. En ef Sunset Rubdown heldur sér á því flugi sem það hefur verið á undanfarin ár gæti ég vel trúað því að þeir myndu jafnvel gera enn betri skífu næst … við skulum að minnsta kosti vona það.
„For the Pier (and dead shimmering)" (aðdáendamyndband):
„Child-Heart Losers" (aðdáendamyndband):

bió on desember 5th, 2007
Spencer Krug er mikill meistari og Sunset Rubdown frábær sveit eins og annað sem hann snertir. Mjög góð plata.