Hjaltalín – Sleepdrunk Seasons

by bio on desember 19, 2007

Hjaltalín - Sleepdrunk Seasons
Einkunn: 4.5
Utgafuar: 2007
Label: Kimi Records

Kokteill kraftmikillar poppsmíðar með klassískum krækiberjum og smá salti.

Frumburðar Hjaltalín hefur verið beðið lengi. Allt frá því að sveitin lét fyrst á sér kræla í þeirri mynd sem við þekkjum hana á Airwaves í fyrra og vakti mikla athygli. Platan Sleepdrunk seasons hefur nú litið dagsins ljós og er kærkominn gleðigjafi á köldu og dimmu ísaköldu landi.

Til þess að lesendur haldi alveg örugglega áfram að lesa þá er þessi plata að mínum dómi mjög góð.

Enginn MH-sykur lengur
Eins og margar góðar sveitir á Hjaltalín rætur að rekja í Menntaskólann við Hamrahlíð. Þar steig sveitin sín fyrstu spor fyrir margt löngu með lögum framreiddum í formi sykurhúðaðs spilverkspopps eins og þau sjálf hafa kallað bernskubrekin. Þau hafa þó fyrir löngu látið öðrum gömlum skólafélögum eftir þann kaleik.

Hjaltalín er huguð hljómsveit sem leitar á önnur mið en samferðamennirnir óhrædd við þær áskoranir sem þar kunna að verða fyrir þeim. Þau þurfa ekki að taka sérstaklega fram í viðtölum að þau taki sköpun sína alvarlega eða séu metnaðarfull sveit. Slíkt er algjörlega augljóst þegar hlustað er á sveitina.

Hjaltalín er samansett af níu öflugum hljóðfæraleikurum og söngvurum með breiða skírskotun í klassíkri tónlistarmenntun. Hljóðfæraskipan er fjölbreytt með bæði brass og strengi í síst minna hlutverki en gítar eða bassi hjá flestum sveitum. Útsetningar eru oft flóknar, taktskiptingar áberandi og form laganna ekki í hefðbundnum dægurlagastíl.

Gömul og rótgróin tónleikalög í bland við nýrri
Aðdáendur sveitarinnar munu þekkja flest lögin á plötunni enda hafa þau grundvallað tónleikaprógram sveitarinnar síðustu misserin. Lög eins og „Traffic Music“, „The Boy Next Door“, „Debussy“, „The Trees Don't Like The Smoke“ og „Selur“ sem maður vissi varla hvað hétu fyrr en nú eru gamlir kunningjar af tónleikum (og sum hver af MySpace) og njóta sín vel á plötunni. Ópusinn „Goodbye July / Margt að ugga“ er auðvitað á plötunni en þar er á ferð eitt óvæntasta hitt síðustu ára. Óhefðbundið lag á allan hátt en grípandi og töfrandi í furðulegheitum sínum með hinu óvæntu kaflaskilum og töfrandi söng Sigríðar Thorlacius. Textinn lagsins er líka eftirtektarverður, bútur frá einu af kunnustu skáldum 16. aldar, Þórði Magnússon, lögréttumanns Gunnsteinssonar settur saman við texta Örvars Þóreyjarsonar Smárasonar sem er sveitinni víðar á plötunni innan handar við textagerðina.

Airwaves mynd eftir Leó Stefánsson 
Mynd eftir Leó Stefánsson af vef Airwaves

Ekkert Eurovision hér
Lögin eru sum hver tormelt. Þetta eru sko engin Eurovision lög þar sem byrjað er að dansa með við fyrstu hlustun. Þau lög sem maður hefur oftast heyrt áður eru lögin sem hljóma best við fyrstu hlustun á plötunni. Hin lögin þarfnast tíma og yfirlegu. Þessa plötu þarf að hlusta á. Hún hentar ekki vel undir í matarboðum. Hér þarf annaðhvort heyrnartól eða fulla einbeitingu að hátölurunum – að minnsta kostu við fyrstu hlustun.

Hjaltalín birtist mér á Airwaves í fyrra sem gríðarlega efnileg og áhugaverð sveit. Nú þegar fyrsta platan er komin út, löngu löngu eftir að biðin eftir henni hófst, er ljóst að sveitin er ekki lengur bara efnileg heldur eitt frambærilegasta afsprengi íslensku tónlistarbylgjunnar sem ég hef rekist á lengi. Platan er kokteill kraftmikillar poppsmíða með klassísk ættuðum krækiberjum og smá salti. Sem er gott.

Besta íslenska plata ársins
Á svakalega sterku íslensku tónlistarári stendur frumburður Hjaltalín upp úr og hvetur mann enn frekar en áður til að fylgjast með sveitinni í framtíðinni. Sem fyrr mæli ég eindregið með því að áhugasamir mæti á tónleika sveitarinnar því hún er sérlega skemmtileg á sviði. Biðin eftir næstu plötu er hafin og vonandi verður hún ekki löng. Fram að því hlusta ég vafalaust reglulega á Sleepdrunk Seasons, bestu íslensku plötu ársins 2007.

es. ef þú hefur enga trú á gæðum þessarar plötu og finnst þetta bara hið sæmilegasta byrjendaverk en alls engin plata til að missa sig yfir líkar þér eflaust dómur Monitor um plötuna betur en þessi. Þar er lítil hrifning á ferð. 

Tengdar færslur:

  1. Daníel Ágúst Haraldsson – Swallowed A Star
  2. Gwen Stefani – The Sweet Escape
  3. The Grand Archives – The Grand Archives
  4. Airwaves dómur: Computerclub – Computerclub
  5. Bullet For My Valentine – Scream Aim Fire

44 comments

monitor dómurinn var nær lagi en þessi. Allt í lagi plata en ekkert betri en það.

by arnar þorsteins on Fimmtudagur 20. desember 2007 at 02:00:58. #

Ein besta plata ársins í mínum huga. Brilliant tónlist.

by Gummi Jóh on Fimmtudagur 20. desember 2007 at 09:57:33. #

Mjög góð plata! Ekki sú besta, en góð og ánægjulega hressandi innan um allt hitt sem er í gangi..

by Alex on Fimmtudagur 20. desember 2007 at 13:22:08. #

Mér finnst þessi plata alveg frábær. Og svo vinnur hún hressilega á sem er alltaf plús.

by Pétur Valsson on Fimmtudagur 20. desember 2007 at 13:52:05. #

Erfitt að finna íslenska plötu sem fær undir 4 hjá rjómanum. Mér finnst bara ein íslensk plata eiga skilið 4 eða yfir í ár og það er Mugiboogie og hún fær 3 hér.

by Jón on Fimmtudagur 20. desember 2007 at 16:02:20. #

Þessi plata náði mér við fyrstu hlustun og hefur ekki sleppt takinu. Frábær plata sem verður betri við hverja hlustun.

by Óttar on Fimmtudagur 20. desember 2007 at 19:04:07. #

Ég viss að þessi væri orðin algjört djók, en vá, þessi dómur, þessi hljómsveit, allt saman hræðilegt.

by Haukur on Sunnudagur 23. desember 2007 at 20:03:00. #

Það væri gaman að fá að lesa rökstutt mál Hauks. Sömuleiðis væri gaman að geta skilið mál hans aðeins betur.

by Alex on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 16:56:25. #

Ertu að skrifa til einhvers sérstakan Alex? Þetta átti að vera:

„Ég viss að þessi SÍÐA væri orðin algjört djók, en vá, þessi dómur, þessi hljómsveit, allt saman hræðilegt.“

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:42:57. #

Hjaltalín er wannabe Arcade Fire, einsog þeir sögðu sjálfir, þegar Monitor ef ég man rétt, spurðu þau hvernig tónlist þetta væri, þá sögðu þeir að þeim hafa verið lýst sem „hin íslenska Arcade Fire“ eða eitthvað álíka.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:44:32. #

Nema að mínu mati er Arcade Fire góðir og Hjaltalín hinsvegar léleg(þó að Neon Bible var alls ekki besta plata ársins).

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:44:48. #

Svo finnst mér alltaf kjánalegt þegar hljómsveitir, sem eru væntanlega að reyna að vera sjálfstæðar, skera sig út úr tónlistarmarkaðanum og gera eitthvað nýtt líkja sig við aðra heimsfræga hljómsveit.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:45:00. #

Hjaltalín er alls ekki frumleg hljómsveit, þó að þið haldið það fram út af því þeir eru með alveg 9, já, 9 tónlistarmeðlimi og þú veist, í laginu, Goodbye July þá STOPPA ÞEIR, bara í miðju kafi, og byrja að syngja á ÍSLENSKU svo byrja þau AFTUR að spila Goodbye July.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:45:28. #

Og ef íslenskar plötur hafa aldrei verið jafngóðar á þessu ári og ef íslensk tónlist er svona góð, þá ættuð þið að hafa einungis einn árslista, ekki skipta því í erlendan og íslenskan.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:45:43. #

Og ef ykkur finnst Hjaltalín frumleg hljómsveit þá hafið þið greinilega hlustað of mikið af íslenskri tónlist í ár.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:45:57. #

Svo er magnað með árslista Egills Harðars: Hann gaf Menomena 5,0 í einkunn, en Editors, Loney, Dear og Interpol 4,0. Samt er Menomena aðeins í sjöunda sæti? og allir hinar plöturnar eru hærra en hún?

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:48:20. #

Þessi síða er bara orðin kjánaleg, vantar fáranlega mikið af góðum plötum á ykkar erlenda „topplista“ og plötur sem eiga alls ekki skilið að fá eitthvað lof, fá það hjá ykkur.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:48:45. #

En það er víst bara minn smekkur og smekkur getur verið mismunandi, allavega veit ég að ég er ekki sá eini sem finnst þessi síða vera orðin glötuð og að Rjóminn var þúsund sinnum betri þegar hann byrjaði fyrst.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:48:58. #

P.S. Þurfti að senda þetta inn í bútum, því þessi síða er meingölluð, bannar texta með meira en 300 orðum en þó að ég sendi inn aðeins 100 orða texta þá bannar hún það samt og segir að ég sé með yfir 300 orð.

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:50:41. #

P.S.2 ef þú finnur eitthverjar stafsetningarvillur eða eitthvað er óskýrt Alex, endilega ekki benda á það, ég nennti ekki að fara yfir textann.

Gleðileg Jól

by Haukur on Þriðjudagur 25. desember 2007 at 18:51:00. #

Viltu ekki bara senda okkur langt og gott bréf Haukur minn svo þú getir látið lúðra þína blása?

by Egill on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 16:48:35. #

Þetta stóð í viðtali við Hjaltalín tekið úr Monitor;

„Það er kannski ekkert undarlegt en kannski svolítið ósanngjarnt að íslensku listaspírunum í Hjaltalín skuli vera endalaust líkt við kandadísku sveitina Arcade Fire….“

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:13:35. #

„…Báðar þessar sveitir spila frumlegt afbrigði af rokktónlist, hafa fleiri meðlimi en gengur og gerist og styðjast við fremur óhefðbundna hljóðfæraskipan. Það er að segja, þær innleiða hljóðfæri er oftast eru notuð við flutning klassískrar tónlista…“

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:14:06. #

„…En þegar gaumgæfilega er gáð er stór munur á þessum sveitum. Arcade Fire spilar popplög sem gætu öll verið úr lagabanka Bruce Springsteen skreytt með harmonikkum og fiðlum….“

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:15:35. #

„…Í tónlist Hjaltalín eru „hljóðfærin” (eins og liðsmenn kalla klassísku hljóðfærin sín á milli) ekki notuð til skrauts heldur oft notuð í forgrunn. Auk þess sem sveitin leggur áherslu á fjölbreytileika í lagasmíðum og skiptir jafnvel um gír í miðjum lögum.“

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:16:34. #

Aldrei í þessu viðtali og hvergi í öllum monitor blöðunum nefna líkja Haltalín sér við Arcade fire. í uppsveiflugrein blaðsins um hljómsveitina er skrifað;

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:31:15. #

„Hvernig tónlist?
Hefur verið kölluð hin íslenska Arcade Fire, sem er kannski svolítið ósanngjarnt. Svipuð hljóðfæraskipan, en aðrar áherslur.“

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:31:33. #

ég held að Haukur ætti ekki að byggja andúð sína á þessari skemmtilegu hljómsveiti á misskilningi, heldur ætti hann að hlusta á plötuna sem ég efast um að hann hafi gert.

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:33:57. #

það er kannski rétt að nefna það að kvótið úr viðtalinu er tekið úr formálanum skrifað af blaðamanni en ekki bein tilvísun frá hljómsveitarmeðlimum. góðar stundir

by goggi on Miðvikudagur 26. desember 2007 at 18:45:13. #

Hey, Egill, ef þú hefur enginn rök til þess að bætta við í umræðuna, þá skaltu ekkert að vera svara.

by Haukur on Fimmtudagur 27. desember 2007 at 12:58:52. #

Goggi, ekki vera fífl og halda því fram að ég hafi ekki hlustað á Hjaltalín, því ég hef, öll lögin þeirra á myspace ásamt því að hafa heyrt allt setið þeirra á airwaves plús heyrt önnur lög af plötunni þeirra sem eru ekki á myspace. Ég hef góða hugmynd hvort að þessi hljómsveit er góð eða léleg.

by Haukur on Fimmtudagur 27. desember 2007 at 12:59:18. #

Var að tala um „Hvernig tónlist?“ bútann í monitor og segjum að ég hafi aldrei hlustað á Hjaltalín og ég myndi lesa þennan búta, hvernig hugmynd helduru að ég myndi fá af hljómsveitinni?

by Haukur on Fimmtudagur 27. desember 2007 at 12:59:47. #

Ég nenni þessu ekki, þið nennið hvortsem er ekki að koma með neinn almennileg rök þannig að þetta er allt saman tilgangslaust, eins og þessi síða.

by Haukur on Fimmtudagur 27. desember 2007 at 13:00:00. #

Takk, Haukur, fyrir góðar athugasemdir.

Að mörgu leyti skil ég hvað þú átt við, enda lentu t.d. uppáhaldsplötur mínar ekki inn á topp20 lista Rjómans og þykir mér það mjög miður. Þetta er hinsvegar alltaf raunin með árslista, sama hjá hvaða fjölmiðli (rjóminn, fréttablaðið, mogginn, erlend blöð), því á endanum fá plöturnar sem flestir kjósa flestu stigin.

Gaman væri að heyra hvaða plötur þér fannst vanta. Mínar sjást á einstaklingslistunum. Einstaklingslistar þurfa síðan ekkert að endurspegla einkunnagjöf við dóma, því einhver ein plata getur haft gríðarlegt gildi fyrir einhvern þó að hún hafi marga galla og myndi ekki fá háa einkunn.

Í Monitor viðtali við Hjaltalín var hljómsveitin einmitt að afsanna hugmyndir annarra um að þau væri hin íslenska arcade fire. Ég veit til þess að meðlimir finnst það vera algjört kjaftæði og vilja bara vera metin út frá eigin verðleikum. Hinsvegar eru fjölmiðlar auðvitað gjarnir á að koma með svona gífuryrði sem getur vissulega angrað lesendur, og því skil ég pirring þinn, hafir þú ekki lesið greinina.

Loks hvað varðar síðuna, þá er hún rekin 100% af sjálfboðavinnu þeirra sem skrifa á síðuna, taka myndir og hafa umsjón með vefinn. Nýlega fóru fram ritstjórnarskipti ásamt því að forritun síðunnar fór í endurnýjun. Síðan er sumsé í stöðugri vinnslu og því vitum við að það er eitt og annað sem þarf að bæta. Mér þykir einungis leitt að þú finnur þig knúinn til að berja niður eitthvað sem við reynum að gera vel í okkar frítíma. Flestallir eru ánægðir með okkar störf en þeir láta auðvitað sjaldnast í sér heyra.

kveðja,
Alex

by Alex on Fimmtudagur 27. desember 2007 at 18:52:44. #

Hvað eruð þið að svara svona tröllskessum eins og honum Hauki? Hann er þar að auki duglegastur að svara sér sjálfur sýnist mér :)

by egill on Laugardagur 29. desember 2007 at 19:20:21. #

Þakka gott svar Alex. Það er auðvelt að vera fífl á netinu og ef ég kom út þannig í sumum kommentunum mínum þá afsaka ég. Egill, ef þú sem gagnrýnandi getur ekki höndlað gagnrýni þá skaltu ekkert að vera gagnrýna. Ef ég er tröllaskessa þá er Alex tröllaskessa, nema ég neikvæð og hann jákvæð. Þú ert hinsvegar ekkert.

by Haukur on Laugardagur 29. desember 2007 at 19:34:29. #

Síðan sjálf er þannig séð ekkert slæm, dómarnir eru ágætlega vel skrifaðir, hver náttúrulega eftir hver skrifar, en mér finnst þessi síða verða meira og meira eins og t.d. Rolling Stones heldur Pitchfork. Ekki þó fá þá hugmynd að ég elski Pitchfork, þvert á móti, en hún er samt áreiðanleg og dómarnir (rating) oftast spot on.

by Haukur on Laugardagur 29. desember 2007 at 19:37:58. #

Einstaklingar sem vilja Mika, Foo Fighters eða Chris Cornell á sínum árslista er í fínu lagi mín vegna en ég á erfitt með að taka síðu alvarlega þegar það kemur þá á dómum.

by Haukur on Laugardagur 29. desember 2007 at 19:46:16. #

Rosa er nafni minn reiður hérna. Fjúff!

Annars vildi ég bara gera athugasemd við að það er ekki hægt að gera athugasemd við árslistann. Það hefði verið gaman.

Gleðileg áramót! Takk fyrir þau gömlu!

-haukur sm

by Haukur SM on Laugardagur 29. desember 2007 at 19:50:02. #

Ég skil að það getur verið erfitt að halda upp svona síðu, fyrst að hún er 100% sjálboðarvinna. Það útskýrir af hverju dómar koma óreglulega inn (gætu vel verið að það sé búið að breyta og nýr dómur kemur reglulega á ákveðnum dögum en ég skoða þessa síðu ekki reglulega lengur).
Þannig að haldið áfram með góð störf, ég gleymdi í smástund að smekkur getur verið mismunandi þegar ég las dóminn, en ég persónulega tek lítið mark á rjómanum lengur. En það er bara ég. Minn smekkur er víst mismunandi heldur en smekkur rjómans.

by Haukur on Laugardagur 29. desember 2007 at 19:54:36. #

Hæhæ.

Ég vildi bara benda á, vegna síðustu athugasemdar, að það er í rauninni ekkert til sem er smekkur Rjómans. Frekar smekkur ákveðins penna innan Rjómans. Við erum rosa mismunandi og með mismunandi tónlistarsmekk og sést það best á árslistunum okkar.

Svo er Alex kvk.

Gleðilega hátíð! :)

by Hildur Maral on Sunnudagur 30. desember 2007 at 02:38:49. #

Nú ætla ég að vera málefnalegur. Og þó, kannski að ég sleppi því.

Mikið er skelfilega erfitt að halda athygli við lestur á þessu þvaðri þínu, Haukur. Þú ert nánast óskrifandi! Þar að auki er gagnrýni þín algjörlega tilgangslaus; þú virðist halda að það sé til algild mælistika fyrir alla tónlist. Hér eru sjóðheitar fréttir fyrir þig, málhalti vinur: Þessi mælistika er ekki til.

Þú reynir að draga í land í síðasta innleggi þínu en holan sem þú grófst þér var dýpri en svo að þér tækist að komast upp úr henni í fyrsta stökki.

Það gæti mögulega verið til marks um að þessi síða sé á uppleið að andlegir kraftajötnar á borð við þig þola hana ekki.

Rjómafólk, takk fyrir ykkar óeigingjörnu vinnu.

Kveðja,

Andri

by Andri on Sunnudagur 30. desember 2007 at 13:35:04. #

Ég vil taka það fram að það er einhver annar Egill en ég, Egill Harðarson, sem skildi eftir athugasemd hér að ofan. Ég myndi undir engum kringumstæðum kalla nokkurn mann tröllskessu ef ég ætlaði mér að móðga hann :)

by Egill on Miðvikudagur 9. janúar 2008 at 16:55:40. #

Já og venjum samkvæmt skrifa ég nafnið mitt með stórum staf.

by Egill on Miðvikudagur 9. janúar 2008 at 16:57:21. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.