Nýr Rjómi

Þá er nýr Rjómi loksins kominn í loftið! Eins og sjá má höfum við valið að fara þá leið að bloggvæða Rjómann en það gerum við sökum þess að okkur þótti formið á gamla Rjómanum of knappt. Bloggið gerir okkur kleyft að halda stöðugu flæði frétta um tónlist og tilheyrandi og færa þannig lesendum okkar enn meiri umfjöllun en áður. Einnig auðveldar þetta okkur hverskonar birtingu á bæði myndböndum og tónlist.
Þrátt fyrir tilkomu bloggsins eru plötudómar og umfjallanir enn aðalsmerki Rjómans og er ólíklegt að það breytist á bráð. Plötudómarnir ættu ekki að fara fram hjá neinum en þegar þessi orð eru skrifuð ætti að blasa við flestum fimbulstórt umslag hinnar ágætu plötu Grrr… með Bishop Allen hér til hægri. Þarna munu svo nýjustu plötudómarnir birtast í framtíðinni en þeir eldri aðgengilegir undir flokknum “plötudómar” sem finna má í valmyndinni hér að ofan.
Árslistarnir eru svo einnig á sínum stað og eru þeir vel merkir í dálknum hér til hægri.
Ýmsar nýjungar fylgja auðvitað nýjum vef og má í því sambandi nefna að Rjóminn er nú beintengdur við Facebook og geta lesendur nú skráð sig með því að nota Facebook notanda próflínn sinn. Einnig er bein tenging við tónlistarsíðuna Last.fm til staðar og uppfærir hún stöðugt það sem ritstjórn er að hlusta á hverju sinni. Rjóminn er einnig á Twitter og uppfærist það nýjasta sem ritað er þar sjálfkrafa í dálknum hér til hliðar. Fleiri nýjungar eru væntanlegar og því um að gera að fylgjast vel með. RSS molar eru hér eins og áður og hægt er að fylgjast með færslum og greinum ásamt ummælum og athugasemdum.
Þar sem við erum enn að vinna að ýmsum hlutum á bakvið tjöldin gætu smávægilegir hnökrar verið á hinu og þessu. Ég vona að þið sýnið okkur biðlund á meðan við lögum það litla sem útaf ber.
Ég vona að lesendur verði ánægðir með þennan nýja vef og að þeir muni taka virkan þátt í umræðunni og uppbyggingu Rjómans og hjálpa þannig til við að auka orðspor og hróður hans.
Fyrir hönd Rjómans,
- Egill Harðar
Engar tengdar færslur.
9 Athugasemdir
Egill Harðar on mars 16th, 2009
Takk fyrir!
Sigurdór Guðmundsson on mars 16th, 2009
Til lukku með vefinn!
Samúel Jón Gunnarsson on mars 16th, 2009
Þess má einnig geta að nú er orðið mögulegt fyrir lesendur rjómans að gefa greinum einkunnargjöf ss. umfjöllunum og plötudómum.
Til lukku rjómverjar og lesendur með nýja rjómann.
Guðmundur Sigurðsson on mars 16th, 2009
Flott look á þessu Egill, til hamingju með þetta
Egill Harðar on mars 16th, 2009
Takk fyrir kærlega. Njótið vel
Björn Björnsson on mars 17th, 2009
Frábært að fá ykkur aftur, ég leita mikið hingað til að finna nýtt stuff til að hlusta á. Virkilega vel heppnuð uppfærsla á vefnum.
Egill Harðar on mars 17th, 2009
Takk kærlega fyrir það Björn minn. Vonandi náum við að standa undir væntingum.
SiggaSig on apríl 15th, 2009
Frábær nýi Rjóminn!








Halla Kolbeinsdottir on mars 16th, 2009
Lítur vel út