Ný plata með Grizzly Bear

Veckatimest_coverÞann 26. Maí n.k. kemur út þriðja breiðskífa Brooklyn-kvartettsins Grizzly Bear hjá Warp útgáfunni og mun platan bera nafnið Veckatimest. Þann 2. mars vildi svo (ó)heppilega til að platan lak í heild sinni á veraldarvefinn, sem gerði æstum aðdáendum biðina bærilegri.

Grizzly Bear gátu sér gott orð með síðustu skífu sinni, Yellow House, sem kom út 2006 og innihélt m.a. hið stórgóða lag “Knife” (sjá meðfylgjandi YouTube myndband).

Grizzly Bear – Knife

Rjóminn getur af sjálfsögðu ekki mælt með því að lesendur niðurhali plötunni ólöglega. Þvert á móti mælum við með því að fólk næli sér í eintak á plasti eftir rúma tvo mánuði – peningana virði, enda frábær plata.

Grizzly Bear – Two Weeks

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Grizzly Bear remixaðir og remixa
  2. Grizzly Bear þekja Hot Chip
  3. Thom Yorke og Grizzly Bear í vampýrustuði
  4. Ballet gefur út Bear Life
  5. Ný lög frá Panda Bear

2 Athugasemdir

Hildur Maral Hamíðsdóttir  on mars 18th, 2009

Þessi plata greip mig strax, ólíkt fyrstu plötunni þeirra sem ég hef ekki enn lært að fíla…

Egill Harðar  on mars 20th, 2009

Hún byrjar vel en dalar aðeins í lokin. Fyrstu lögin eru alveg hrikalega góð.

Tjáið ykkur um málið