Nýtt, nýtt og aftur nýtt!

Golden BearEin af þessu litlu og lítt þekktu sveitum sem mögulega gætu skotist upp á stjörnubjartan himin indie tónlistarinnar er Texas sveitin Golden Bear en hún sendi nýverið frá sér EP plötuna Everest sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda. Við hér hjá Rjómanum getum ekki annað en mælt með þessari ágætu sveit.

Golden Bear – Future Blues

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Psych-pop grúbbuna Black Moth Super Rainbow kannast eflaust einhverjir við. Þann 26. maí næstkomandi mun nýjasta afurð sveitarinnar sjá dagsins ljós og mun gripurinn, sem tekinn var upp af Dave nokkrum Fridmann (The Flaming Lips, MGMT, Weezer), bera nafnið Eating Us. Meðfylgjandi er fyrsta smáskífan af plötunni væntanlegu sem heitir “Born On A Day the Sun Didn’t Rise”

Black Moth Super Rainbow – Born On A Day the Sun Didn’t Rise

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Eitt best geymda leyndarmálið í rokkinu í dag er hin létt pönkaða kraftapoppsveit Saint Bernadette. Sveitin sú gaf út EP plötuna Word To The Lourdes þann 22. apríl síðastliðinn en meðlimir sveitarinnar hafa verið iðnir við að kynna plötuna og m.a. gefið öll lögin af EP plötunni frjáls til niðurhals á MySpace síðu sinni. Hér er eitt af þeim:

Saint Bernadette – Already Gone

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Hið margrómaða indie útgáfurfyrirtæki Labrador hefur komið til móts við þá sem nota Torrent tæknina og bjóða safndisk með úrvali sveita sem á þeirra snærum eru til niðurhals á hinum umtalaða Pirate Bay vef. Við látum ekki bjóða okkur það tvisvar!

Labrador Spring Sampler

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 4.5/5 (2 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0 (from 0 votes)
Nýtt, nýtt og aftur nýtt!4.552pixelstats trackingpixel

2 Athugasemdir

Guðmundur Vestmann  on apríl 21st, 2009

Dave Fridmann er guð, hlakka til að kynna mér Black Moth betur ..

UN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0 (from 0 votes)

Árni Viðar  on apríl 22nd, 2009

…hann hefur gert margt gott en tókst aftur á móti að slátra Drums & Guns með Low. Er aðeins of mikið fyrir að þjappa (compress) öllu saman og of-pródúsera!

en Boces með Mercury Rev er snilld. Vildi bara koma því að!

UN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0 (from 0 votes)

Tjáið ykkur um málið