Dirty Projectors
Eitt það hressasta sem borist hefur að eyrum mínum undanfarnar vikur er Bitte Orca, óútkomin plata Brooklyn-sveitarinnar Dirty Projectors. Hljómsveitin er ansi óútreiknanleg í tónsmíðum sínum og sækir áhrif í hinar ýmsu áttir (ég ætla mér þó ekki að fara út í að greina þær hér). Dirty Projectors hefur tekið tíðum mannabreytingum í gegnum árin enda er þetta fyrst og fremst hugarfóstur Dave nokkurs Longstreth, stofnanda bandsins. Bitte Orca kemur út 9. Júní á vegum Matador og mæli ég eindregið með að áhugafólk um frumlegt indí-popp kynni sér þessa plötu.
Þess má til gamans geta að í byrjun Maí mun Dave þessi, ásamt nokkrum meðlimum Dirty Projector, vinna með Björk. Þau munu flytja einhverskonar tónverk eftir Dave sem skrifað er fyrir 5 raddir og kassagítar. Ágóði tónleikanna mun renna til útigangsmanna í New York.
Dirty Projectors – Temecula Sunrise af Bitte Orca
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Dirty Projectors þekja Dylan
- Ný og frí smáskífa með Dirty Projectors
- The Shins þekja Squeeze
- Fleiri þekjur í boði Levi’s
- Lagalisti á þriðjudegi
2 Athugasemdir
Ýmislegt frá Brooklyn | Rjóminn on ágúst 12th, 2010
[...] plötum þessa árs einmitt verið ættaðar þaðan: Merriweather Post Pavilion, Veckatimest, Bitte Orca, Songs of Shame. Og það sama má í raun yfirfæra á síðasta ár líka: MGMT, TV on the Radio, [...]








Lilja Kristín on maí 4th, 2009
Já þetta er virkilega skemmtileg og fersk plata. Ekta sumarcandy