Af álum og útgefandaleit

Þar sem við Rjómaliðar erum öll svo agalega upptekin þessa dagana við próflestra og vinnu hefur ekki mikill tími gefist til að sinna okkar kæru lesendum. Nú skal bætt fyrir fjarveruna og færsluleysið:

Eels
Hombre loboÞað eru fjögur ár liðin frá því að Hr. E og félagar hans í Eels gáfu út hina tvöföldu Blinking Lights And Other Revelations en á mánudaginn tekur biðin eftir nýrru plötu loks enda. Þá kemur út platan Hombre Loco: 12 Songs Of Desire en þema plötunnar snýst að mestu um það hvað gerist þegar “Dog Faced Boy” (karakter sem kom fyrir á Souljacker plötu Eels sem kom út 2001) fullorðnast og breytist í virðulegan varúlf. Eða eitthvað í þá áttina allavega.

Eels – That Look You Give That Guy

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Nesey Gallons
Nesey Gallons - Eyes & Eyes & Eyes AgoLo-fi gutlarinn Nesey Gallons á það lag sem náð hefur að líma sig hvað fastast við heilann á mér og hamast þar á nánast endalausu repeat síðustu vikur. Lagið heitir “Aurora Borealis” og er það síðasta af væntnanlegri plötu sem heita mun Eyes & Eyes & Eyes Ago en óvíst er hvenær sá gripur mun koma út þar sem enginn finnst útgefandinn enn sem komið er (þetta hefur þó ekki komið í veg fyrir að platan sé komin í umferð á Netinu).

Nesey Gallons – Aurora Borealis

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. 5 bestu lög ársins
  2. Bestu lög 2009 : Fyrsti hluti
  3. Conor Oberst með nýja plötu
  4. Úr pósthólfinu
  5. Fjögur úr inbox-inu

Tjáið ykkur um málið