Joe Pug spilar á Kaffi Rósenberg
Joe Pug spilar á Kaffi Rósenberg fimmtudaginn 2.júlí n.k. Bob Justman & Snorri hita upp.
Tónleikarnir hefjst kl 21:00 og kostar litlar 1000ISK inn. Forsala er á midi.is og í verslunum Skífunnar.
Joe Pug er 25 ára gamall þjóðlagasöngvari af gamla skólanum fæddur í Norður Karólínu en býr nú í Chicago. Ferill hans sem tónlistarmaður hófst ekki fyrr en síðla árs 2007 en áður hafði Joe unnið fyrir sér sem smiður. Fyrsta stuttskífan Joe, Nation of Heat, kom út árið 2008. Frá útgáfu skífunnar hefur Joe verið á stöðugu tónleikaferðalagi og spilað með ekki minni spámönnum en t.d. M. Ward, Steve Earle, Josh Ritter og The Flatlanders.
Sumarið 2009 verður einnig spennandi hjá Joe, en hann mun spila á Bonnaroo, Lollapalooza og hinum margfræga Newport Folk Festival, sem allir alvöru Dylan áhugamenn kannast vel við.
Tónleikar Joe Pug á Rósenberg eru hans fyrstu utan Bandaríkjanna, en hann stoppar hér á leið sinni til Noregs þar sem hann kemur fram á tónlistarhátíðinni Bukta Outdoor Music Festival í Tromsö.
Fyrsta breiðskífa Joe Pug er síðan væntanleg síðar á þessu ári.
Joe Pug – Hymn #101
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Alasdair Roberts spilar á Venue
- Sudden Weather Change spilar á Faktorý
- Woodpigeon á Íslandi
- Jeff Hanson látinn
- Mammút til Evrópu








Nýlegar Athugasemdir