Konungur poppsins allur
by Hildur Maral Hamíðsdóttir on júní 26, 2009
Eins og flestum ætti nú að vera orðið kunnugt um er Michael Jackson látinn, aðeins fimmtugur að aldri. Fregnir af andláti hans bárust eins og eldur um sinu á internetinu í gærkvöldi og voru flestir ef ekki allir slegnir að heyra um fráfall poppgoðsins. Það er varla til það mannsbarn sem ekki þekkir Michael Jackson og er því ekki ofsögum sagt að hann hafi verið Elvis okkar tíma, þó svo að ólíkir hafi þeir verið.
Jackson vann að undirbúningi tónleikaraðar sem átti að marka endurkomu hans í tónlistarheiminn en á sama tíma að vera hans síðasta. Tónleikaröðin átti að hefjst í London þann 13. júlí og varð uppselt á svipstundu, enda hafði Jackson ekki komið fram á tónleikum í heillangan tíma.
Rjóminn leggur til að allir taki sér smá tíma og hlusti á eitt til tvö lög með meistaranum honum til heiðurs, en hann mun ávallt lifa áfram í tónlistinni!
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína