Nýtt Fleet Foxes lag

Þeir eru án efa ófáir sem spilað hafa frumburð Fleet Foxes í ræmur og er farið að þyrsta í nýtt efni frá refunum. Nú á dögunum var sveitin stödd á Glastonbury hátíðinni en þar hitti forsöngvari sveitarinnar, Robin Pecknold, útvarpsmenn frá BBC og spilaði fyrir þá glænýtt lag úr smiðju sveitarinnar. Lagið heitir “Blue Spotted Tail” og er hugljúft og grípandi, líkt og venjan er hjá sveitinni:

Fleet Foxes – Blue Spotted Tail (live acoustic)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Annars þá spilar sveitin á Hróarskelduhátíðinni næstkomandi föstudag og munu þarstaddir Rjómapennar líklega flytja ykkur fagnaðarerindið frá þeim tónleikum áður en langt um líður.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Roskilde ’09 : Fleet Foxes
  2. Ný lög frá Arcade Fire
  3. Tiger Mountain Peasant Song
  4. Urmull af ókeypis tónlist
  5. The Harlem Shakes

Tjáið ykkur um málið