Hróarskelda: The Field í stað Wavves

960d87afedHróarskelda fer senn að hefjast en upphitun fyrir hana er í fullum gangi á hátíðarsvæðinu og má búast við rjúkandi stemningu þegar Rjómverjar flykkjast inn á svæðið á morgun og hinn.

Hátíðin tilkynnti fyrir nokkru síðan að Nathan Williams (Wavves) hefði bæst við dagskrána en skömmu seinna hætti hann við tónleikaferðalag sitt um Evrópu. Hins vegar var planið að spila á Hróarskeldu þrátt fyrir að hinum tónleikunum hefði verið frestað um ókomna tíð en nú er ljóst að ekkert verður af því þar sem trommari hljómsveitarinnar var að hætta.

Wavves spila því ekki á Hróarskeldu í ár en gestir hátíðarinnar þurfa ekki að örvænta þar sem sænski raftónlistarmaðurinn The Field fyllir í skarðið og mun hann því spila á Pavilion sviðinu á föstudagskvöldinu kl. 21.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Fleiri hljómsveitir bætast við Hróarskeldu
  2. Hróarskelda: Miðar á staka daga í boði!
  3. Dagskrá Hróarskeldu birt

Tjáið ykkur um málið