The Most Serene Republic
Kanadíska útgáfan Arts & Crafts mun um miðjan júlímánuð gefa út þriðju breiðskífu kanadíska septetsins The Most Serene Republic. Lagskipt, grípandi og hresst indírokk TMSR minnir á köflum á lagasmíðar landa þeirra í Broken Social Scene en það er svo sem ekkert undarlegt því báðar hljómsveitirnar vinna með sama upptökustjóra, David Newfeld.
Fyrir skömmu skelltu liðsmenn bandsins inn nýju lagi á heimasíðu sína sem sækja mátti ókeypis. Kvikindið bar nafnið “Heavens to Purgatory” og mun prýða skífuna þegar hún lendir í verslunum. Lagið lofar góðu og ég hlakka mikið til að heyra restina af plötunni – en hún kallast víst … And the Ever Expanding Universe.
The Most Serene Republic – Heavens to Purgatory
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Engar tengdar færslur.








Nýlegar Athugasemdir