Frumburður Slow Club

Fyrir tæpum tveim árum heimsótti breska sveitin Slow Club Ísland heim og spilaði á Iceland Airwaves. Sveitin vakti lukku meðal þeirra fáu sem mættu nógu snemma til að sjá sveitina spila (að mig minnir um 8 á fimmtudegi) enda ekki á hverjum degi sem maður sér spilað á stól. Já, annar sveitarmeðlimurinn, Rebecca Taylor, hélt taktinum með því að lemja á stól á meðan Charles Watson mundaði gítarinn og svo sungu skötuhjúin saman eins og þau ættu lífið að leysa. Útkoman var bráðskemmtileg og er ég ekki frá því að tónleikar þeirra hafi verið með þeim eftirminnilegri á þeirri Airwaves hátíð.

Eftir nokkrar vel heppnaðar smáskífur er fyrsta breiðskífa Slow Club væntanleg nú í byrjun næstu viku og heitir Yeah So. Tónlistin er grípandi indípopp sem drifin er áfram af samsöngi og fábreyttum hljóðfæraslætti, þó mig gruni nú að þau hafi nú ekki einskorðað ásláttinn við stóla í hljóðverinu.

Slow Club – It Doesn’t Have To Be Beautiful

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Slow Club – Because We’re Dead

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Ný lög frá Arcade Fire
  2. Heilsa í hástöfum
  3. Miðvikudagsblandan
  4. Ný lög frá Panda Bear
  5. Retrön kynnir Swordplay & Guitarslay

Tjáið ykkur um málið