Dodos senda frá sér nýja plötu

Það er ekki ýkja langt síðan síðast heyrðist frá hinni frábæru sveit The Dodos, en varla er liðið nema rétt rúmt ár frá útkomu plötu þeirra Visiter (sem lenti í 15. sæti á árslista Rjómans í fyrra). Nú með haustinu er svo þriðja breiðskífa sveitarinnar væntanleg og mun heita hinu miður jákvæða nafni Time To Die en tónlistin sem sveitin býður okkur á plötunni er allt annað en neikvæð. Þeir fjölmörgu sem heillast hafa af sveitinni ættu ekki að verða fyrir neinum vobrigðum því Dodos sletta hressu, kraftmiklu og grípandi jaðarpoppi líkt og þeir eigi lífið að leysa.

The Dodos – Longform

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. The Dodos
  2. Ný lög frá Arcade Fire
  3. Sumaruppbót II
  4. Þekjusúpa
  5. Vetur og snjór

2 Athugasemdir

Egill Harðar  on júlí 8th, 2009

Dodos voru frábærir á Roskilde. Ég hlakka til að heyra nýja gripinn!

Guðmundur Vestmann  on júlí 9th, 2009

já – góðir tónleikar! og gott lag! hlakka til . .

Tjáið ykkur um málið