Hafdís Huld í viðtali á ITN

Söngkonan Hafdís Huld er þessa dagana á tónleikaferðalagi um Bretland. Fyrir stuttu kom hún við hjá ITN í London sem sjá um fréttaflutning fyrir bæði Channel 4 og ITV í Bretlandi og dreifa þeir viðtölum sínum víða um heim. Í viðtalinu talar Hafdís um nýja lagið “Kónguló”, samskipti við hinn Franska Kóngulóarmann, og nýju plötuna sem væntanleg er í haust. Einnig flytur hún órafmagnaða útgáfu af “Kónguló” ásamt Alisdair Wright.

Alain Robert hinn Franski Kóngulóarmaður hefur nú haft samband við Hafdísi Huld og list yfir ánægju sinni með lagið. “I did listen your song many times and i really apprecite the lyrics. It is very cool having somebody who is dedicating me a song.”

Hafdís skrifar um bréfið frá Alain á Íslensku blogg síðunni sinni í gær.

Myndbandið við “Kónguló” hefur einnig verið tekið til sýninga í verslunum Topshop um allan heim, en lagið “Tomoko” af fyrstu plötu Hafdísar Dirty Paper Cup var einnig tekið inn á spilunarlista Topshop verslananna á sínum tíma.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Hafdís Huld og Bubbi á Rosenberg í kvöld
  2. Útidúr, Stórsveit Mukkaló, Júníus Meyvant og Ingunn Huld í Háteigskirkju 18.desember.
  3. Elíza Newman – Eyjafjallajökull
  4. Nýtt myndband frá Valgeiri
  5. Nýtt lag með Togga

Tjáið ykkur um málið