Meistarar Sister Suvi

Fyrir nokkrum mánuðum gaf kanadíska sveitin Sister Suvi út frumburð sinn og nefndi Now I Am Champion. Síðan þá hafa tónlistaráhugamenn hægt og sígandi verið að bíta á agnið og á vegur sveitarinnar líklega eftir að vænkast töluvert á komandi mánuðum, enda músík þeirra stórskemmtileg. Sveitin telur þrjá meðlimi sem spila á hin ýmsu hljóðfæri og sækja áhrif úr hinum ýmsu áttum; Patrick Gregoire spilar einnig með hinni frábæru Islands sem heimsótti Iceland Airwaves ekki fyrir alls löngu, Nico Dann er þaulreyndur jazztrommari og hæfileikar Merrill Garbus á ukulele þykja af öðrum heimi. Það besta er þó að músíkin er helvíti góð, enda spila Sister Suvi kraftmikið og frumlegt jaðarpopp af óvenjumiklu öryggi.

Sveitin gaf Now I Am Champion út á vínyl og sem stafrænt niðurhal á eigin merki nú í vor. Plötuna má kaupa á heimasíðu Common Cloud Records en Sister Suvi fer Radiohead-leiðina í niðurhalsmálum og ræður kaupandinn hversu mikið hann greiðir fyrir stafræna eintakið- ansi nettur díll!

Sister Suvi – Desolation

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sister Suvi – The Lot

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Islands í þriðja sinn
  2. Ný lög frá Arcade Fire
  3. Pavement saman á ný?
  4. Dum Dum Girls
  5. Meira af nýju erlendu efni

Tjáið ykkur um málið