L.Ung.A

19_lungasmidjur-069Listahátíð Ungs Fólks á Austurlandi, betur þekkt sem Lunga, verður haldin dagana 13. til 19. júlí n.k. Þetta er í níunda skipti sem Lunga er haldið og hefur hátíðin heldur betur sótt í sig veðrið undanfarin ár.

Fyrir þá sem ekki þekkja til þá fer hátíðin þannig fram að fyrstu fimm dagana er unnið í listasmiðjum og svo tekur við uppskeruhátíð og tveggja daga tónleikaveisla. Öll kvöld vikunnar eru auk þess þéttskipuð skemmtiefni og uppákomum. Smiðjurnar spanna allt frá saumaskap til afró-dans, og má ég til með að nefna hljóðlistasmiðju sem m.a. Curver og DJ Gísli Galdur hafa kennt.

19_lungaopnunarkvold-155Lesendur Rjómans ættu þó sennilega að vera spenntastir fyrir tónleikum hátíðarinnar sem hafa heldur betur ekki verið dónalegir. Heimsþekktir listamenn á borð við Trentemøller hafa leikið fyrir hátíðargesti sem og minna þekkt íslensk góðgæti; Bang Gang, FM Belfast, Botnleðja, Mínus, o.fl o.fl.

Í ár er dagskráin alíslensk: Kimi-liðar taka yfir á föstudag (Sudden Weather Change, Miri, Reykjavík!, o.fl.) og á laugardag spila B. Sig, Jagúar, Mugison og Gus Gus. Hátíðin er því tilvalið tækifæri til að slíta sig frá heimahögunum og demba sér út á land og sjá þrælfína íslenska músíkanta spila á Seyðisfirði.

Lengi má tala umLunga, en í stað þess langar mig bara að benda áhugasömum á heimsíðu hátíðarinnar fyrir frekari upplýsingar.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 5.0/5 (1 vote cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +1 (from 1 vote)
L.Ung.A5.051pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið