Alþjóðleg kvikmyndahátíð óskar eftir sjálfboðaliðum

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík sem haldin verður 17. til 27. september, auglýsir nú í 6. skipti eftir sjálfboðaliðum sem vilja starfa við hátíðina. Sjálfboðaliðar geta verið á öllum aldri og leitast er við að þeir fái verkefni eftir áhugasviði og hæfni. Á heimasíðu hátíðarinnar, www.riff.is er hægt að forvitnast frekar um hátíðina sem og senda inn umsókn. Óskað er eftir fólki til starfa bæði í aðdraganda hátíðar og eins á meðan á henni stendur.

Í fimm ár hafa tugir sjálfboðaliða frá mörgum löndum unnið við Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, rétt eins og tíðkast á stórum kvikmyndahátíðum úti í heimi. Sjálfboðaliðarnir geta fengið margvísleg verkefni:

  • aðstoða við skipulagningu veislna og sérviðburða í borginni, svara spurningum gesta í upplýsingamiðstöð hátíðarinnar eða aðstoða við miðasölu.
  • aðstoða ótalmarga alþjóðlega hátíðargesti við að rata um höfuðborgina.
  • hjálpa til við venjuleg skrifstofustörf, hafa samband við alþjóðlega kvikmyndaskóla, svara í síma og fleira.
  • aðstoða stjörnur úr kvikmyndabransanum að komast á milli staða: til og frá flugvelli og hóteli til dæmis.
  • aðstoða við framkvæmd ýmissa hliðarviðburða hátíðarinnar sem eru sérstaklega ætlaðir grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólanemum.

Nánari upplýsingar veitir Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi hátíðarinnar í síma 861 7374 eða Greipur Gíslason framleiðandi í síma 898 3263.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0 (from 0 votes)
pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið