Flaming Lips!
Eflaust hafa margir heyrt að sérvitringarnir í Flaming Lips stefna að útgáfu sinnar 12. hljóðversskífu síðla þessa árs. Platan mun víst verða tvöföld og bera nafnið Embryonic. Fyrir skömmu bárust út þær fregnir að bandið hefði fengið dúettinn MGMT til liðs við sig við gerð plötunnar sem og Karen O, söngkonu Yeah Yeah Yeahs. Einnig var talað um einhvern lítið þekktan þýskan stærðfræðing, en hvernig hann ratar inn í dæmið er mér óljóst.
Nú hafa 2 stk. lagasmíðar af plötunni ratað inn á veraldarvefinn og lofa bara nokkuð góðu. Ekki er þó að finna rödd Karenar O á upptökunum og verður víst að bíða og sjá hvernig sá bræðingur mun hljóma.
The Flaming Lips – Convinced Hex
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Flaming Lips – Silver Trembling
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Engar tengdar færslur.








Nýlegar Athugasemdir