Nýtt myndband frá Coldplay

by Hildur Maral Hamíðsdóttir on júlí 26, 2009

Eins og margir vita gáfu Coldplay út plötuna Viva La Vida Or Death And All His Friends síðasta sumar. Þeir hafa verið duglegir að fylgja plötunni eftir og lokuðu til að mynda Hróarskelduhátíðinni í ár. Nú hefur nýtt myndband við lag þeirra „Strawberry Swing“ af fyrrnefndri plötu litið dagsins ljós og státar það af vægast sagt furðulegum söguþræði, en Chris Martin söngvari sveitarinnar er hér í hlutverki hetju sem bjargar yngismær frá risaíkorna í stórum tebolla og er myndbandið gert í stopmotion-stíl sem gerir það einkar skemmtilegt áhorfs. Myndbandið verður sýnt í kvikmyndahúsum víðs vegar um Bretland á næstu dögum á undan myndunum Brüno og The Proposal, eitthvað sem fáar hljómsveitir geta stært sig af.

Hér má svo sjá myndbandið og fyrir áhugasama er eldra myndband með hljómsveitinni („Life in Technicolor II“, einnig af Viva La Vida…) þar fyrir neðan sem er einnig öðrum stíl en aðdáendur sveitarinnar eiga að venjast, en þar eru meðlimir sveitarinnar brúður í brúðuleikhúsi að skemmta í barnaafmæli.

„Strawberry Swing“ – Coldplay

„Life in Technicolor II“ – Coldplay

Engar tengdar færslur.

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.