Pedro Pilatus
Logi Pedro Stefánsson, sem fólk kannast eflaust best við úr hljómsvetinni Retro Stefson, hefur undanfarið verið að gera tónlist undir nafninu Pedro Pilatus. Lagið “Stella”, sem heyra má hér að neðan, er tekið upp heima hjá Loga og fjallar um hina ungu snót Stellu.
Logi segist hafa verið “…búinn að vera að berjast við það að ná einhverju úr laginu þegar ég ákvað að prófa að taka upp gítar og semja texta. Gera þetta aðeins minna rafrænt en allt hitt og það virkaði bara vel fannst mér. Ég og Bear Hug (Hugi Þeyr) höfum þekkst í rúmt ár, en við kynntumst í MH. Hann syngur í laginu. Við höfum verið að vinna mikið saman og er þetta svona það fyrsta sem við gefum út saman”.
Logi vonar að hann muni ná að koma meira fram sem Pedro Pilatus á næstunni en eins og menn muna eflaust hitaði hann m.a. upp fyrir Familijen þegar sú ágæta sveit var síðast á landinu. Svo er víst bootleg remix tape væntanlegt frá Pedro og Bear Hug þannig að það er sannarlega von á góðu.
Lagið fæst að sjálfsögðu á gogoyoko.
Pedro Pilatus – Stella
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
2 Athugasemdir
Egill Harðar on ágúst 13th, 2009
Takk. Við erum að sækja aðeins í okkur veðrið eftir hálfgerða sumarfjarveru.








Haukur SM on ágúst 12th, 2009
Vel gert að fjalla um unga ísl. tónlistarmenn! Áfram!