Ný heimildamynd eftir Bjarna Gríms og Frosta Jón Runólfsson um för hljómsveitarinnar Hjálma til Jamaíka verður frumsýnd daginn fyrir Menningarnótt, föstudaginn 21. ágúst, kl. 21.00 í Austurbæ. Eftir sýningu myndarinnar leika Hjálmar lög af nýrri breiðskífu sem væntanleg er í september.

Heimildamyndin nefnist Hærra ég og þú og var tekin upp í maí á þessu ári meðan Hjálmar dvöldu á Jamaíka við upptökur í hljóðverunum Tuff Gong og Harry J. í Kingston. Myndin veitir innsýn í hljóðversvinnu hljómsveitarinnar auk þess sem skemmtilegri mynd er brugðið upp af Jamaíka og fólkinu sem landið byggir.
Breiðskífan sem Hjálmar tóku upp á Jamaíka og í Hljóðrita, Hafnarfirði, hefur hlotið nafni, IV, og kemur út eins og áður sagði í september. Skífan inniheldur 10 lög en heimildamyndin mun jafnframt fylgja með í pakkanum.
Hjálmar Documentary Teaser from hjálmar on Vimeo.
Við upptökurnar á Jamaíka nutu Hjálmarnir aðstoðar ýmissa innfæddra tónlistamanna. Það verður því fróðlegt að sjá hvaða mark þeir settu á lopapeysureggíið sem Hjálmar eru þekktir fyrir. Allt þetta þekkta tónlistarfólk kemur fyrir í myndinni, að ógleymdum Herra Ninja Star, skrautlegum „vibe master“, sem gerður var að sérstökum fylgisveini hljómsveitarinnar á meðan hún dvaldi á eyjunni sólríku.
Miðaverð á frumsýningu myndarinnar og tónleikana er kr. 2.900 en miðasala er hafin á miði.is
Unnendum sveitarinnar er þó bent á að fylgjast vel með Facebook og Twitter síðum hennar þar sem miðar á viðburðinn verða gefnir þar á næstu dögum.
Hjálmar – Manstu
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.









