Réttir. Reykjavik Round-Up.
Í Reykjavík dagana 23.-26. september.
Fjölmargir aðilar í íslensku tónlistarlífi sameina krafta sína og koma að skipulagningu tónleikaseríunnar Rétta sem fer fram á sama tíma og Reykjavik International Film Festival (RIFF) og hin alþjóðlega You Are in Control ráðstefna um nýjar leiðir í dreifingu á tónlistar, menningar- og afþreyingarefnis og aukin tækifæri í markaðssetningu á netinu.
Réttir fara fram 23.-26. september, en þungamiðja dagskrárinnar snýst um fyrstu þrjá dagana; miðvikudag til og með föstudags.
Meðal þeirra sem koma að skipulagningu Rétta og verða með tónleikakvöld í seríunni eru; gogoyoko.com, Kimi Records, Borgin plötuútgáfa, Melodica Acoustic Festival, OkiDoki, Trúbatrix, Reykjavik Grapevine tímaritið og fleiri aðilar.
Staðirnir sem notaðir verða á Réttum eru; NASA, Sódóma og Batteríið.
Miðaverði á Réttir er stillt í hóf og kostar aðeins 3.500 krónur á alla dagskrána, svo lengi sem húsrúm leyfir.
Miði frá Midi.is fæst skipt fyrir armband á tónleikaseríuna frá og með 23. september á tónleikastöðunum sjálfum.
Hljómsveitir og listamenn:
- Mugison
- Hjálmar
- Hjaltalín
- FM Belfast
- Megas & Senuþjófarnir
- Agent Fresco
- Ólöf Arnalds
- Dikta
- Retro Stefson
- Ólafur Arnalds
- Bloodgroup
- Sykur
- Berndsen
- Sudden Weather Change
- Fallegir menn.
Fleiri hljómsveitir og listamenn verða kynntar til leiks á næstu dögum og vikum.








