Verkefnin á hliðarlínunni?
Hliðarverkefni (eða sæd-prójekt eins og sumir kalla þau) eru skemmtilegir fylgifiskar tónlistarbransann og þó að útkoman geti verið æði misjöfn þá hefur oft ýmsilegt spennandi komið úr slíkum verkefnum. Það er því ekki úr vegi að athuga hvaða hliðarverkefni eru á döfinni þessa dagana…
Fyrir nokkru heyrðum við hér á Rjómanum lagið “Give Blood” af væntanlegri skífu Rain Machine (aka Kyp Malone úr TV on the Radio) sem mun einnig bera heitið Rain Machine. Nú hefur lagið “Smiling Black Faces” verið gert opinbert og ættu aðdáendur TVOTR varla að verða fyrir miklum vonbrigðum því tónlist Rain Machine er nú bara ansi svipuð móðursveitinni – sem er nú bara ávísun á góðar stundir.
Rain Machine – Smiling Black Faces
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Bradford Cox úr Deerhunter hefur um hríð starfrækt aukasjálfið Atlas Sound og gaf út ansi prýðilega skífu undir því nafni í upphafi síðasta árs. Í nærri ár hafa demó upptökur af næstu skífu kappans, Logos, verið á flækingi um netið en nú fer loksins að hilla undir útgáfu skífunnar sem koma mun út í lok október. Í sumar byrjaði lagið “Walkabout” að heyrast (tékkið á því hér í Rjómafærslu) en þar heimsækir Noah Lennox (Panda Bear / Animal Collective) hann Bradford. Á plötunni kemur einnig söngkonan Laetitia Saider úr Stereolab og Monade við sögu í hinu frábæra “Quick Canal”, svo það er nóg að hlakka til. Nú er lokaútgáfa skífunnar loks tilbúin og netverjar eru þegar farnir að skiptast á henni – löngu fyrir útgáfudag – eins og virðist vera vaninn þessa dagana. Okkur er því óhætt að taka smá forskot á sæluna og tékka á einu fínu lagi…
Atlas Sound – Sheila
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Það er kannski of djúpt í árina tekið að kalla sveitina Bad Lieutenant hliðarverkefni, en hana skipa nokkrir fyrrum meðlimir New Order auk þess sem Jake Evans úr Rambo and Leroy og Alex James úr Blur koma eitthvað að verkefninu. Sveitin gefur út frumburð sinn, Never Cry Another Tear, nú seinna í september og er lagið “Sink Or Swim” fyrsta smáskífan af henni.
Bad Lieutenant – Sink Or Swim
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Airwaves: When Saints Go Machine
- Ný lög frá Arcade Fire
- Maximo Park gefur út fría remix plötu
- The xx remixxast
- Úr pósthólfinu








Nýlegar Athugasemdir