Eldfjallakór

COVEREkki láta nafnið blekkja ykkur. Volcano Choir er ekki íslenskur karlakór í útrás heldur indísúpergrúbba frá Wisconsins skipuð Justin Vernon (eða Bon Iver) og nokkrum vinum hans. Upphaf þessa samstarfs vinanna má víst rekja til 2005 og breiðskífan sem nú er væntanleg hefur því verið að gerjast um töluvert skeið. Músík Eldfjallakórsins er þó ekki beint í ætt við lágstemmdar og tregafullar tónsmíðar Bon Iver – hér er á ferðinni passlega tilraunakennt fólkrokk með rafmögnuðu ívafi.  Plötuna nefna liðsmennirnar Unmap og kemur hún út á vegum Jagjaguwar útgáfunnar einhverntíman í haust. Annars getið þið prófað að gúgla smá og hver veit nema að breiðskífan í heild sinni komi upp í hendurnar á ykkur.

Volcano Choir – Island, Is

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Lagalisti á þriðjudegi
  2. Casiokids og Choir of Young Believers á Nasa
  3. Thom Yorke og Grizzly Bear í vampýrustuði
  4. Jólalag frá Julian Casablancas
  5. Nýtt Fleet Foxes lag

Tjáið ykkur um málið