Útidúr, Miri og Helgi Valur halda stórtónleika

ÚtidúrJá, haustið er komið. Laufin er byrjuð að gulna og falla af trjánum, vindurinn blæs og skólinn er byrjaður.

Föstudaginn 11.september ætla hljómsveitirnar Útidúr, Miri og Helgi Valur því að halda stórtónleika til að fagna hringrás lífsins og nýju skólaári.

Útidúr er nýjasta hæpið í Reykvísku-grasrótarsenunni. Meðlimir hljómsveitarinnar eru ca.12 og eru tónleikar sveitarinnar annálaðir fyrir mikið stuð og lífsgleði. Tónlistin er indípopp með áhrifum úr flest öllum heimshornum, bossanóva, ska og diskó er m.a. á boðstólnum.

Austfirski kvartettinn Miri er í bullandi stuði þessa dagana, enda eru þeir að taka upp sína fyrstu breiðskífu í samvinnu við meistara Curver. Hamingja, Hamingja, Hamingja og rokk og ról.

Tupac, Biggie og Helgi Valur. Önnur plata rapptrúbadorsins Helga Vals, Black man is God, the White man is devil er nýkomin út og er víst heitari en lummur. Dóp, byssur og gærur eru meðal umfjöllunarefna.

Teitið verður haldið á GrandRokk við Smiðjustíg og hefst um klukkan 10. Þar sem allir eru í góðu skapi verður líka frítt inn.

www.myspace.com/utidur
www.myspace.com/mirimusic
www.myspace.com/helgivalur

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Útgáfutónleikar Miri í Reykjavík
  2. Miri selur lag til styrktar Mæðrastyrksnefndar á Mæðradaginn
  3. Nokia on Ice á Sódóma næstu helgi
  4. 3 Raddir og Beatur halda brottfaratónleika á Faktorý
  5. Bræðslan um næstu helgi

Tjáið ykkur um málið