24/7 kemur í búðir í dag
Fréttatilkynning
Það mætti líkja þessari sjöttu plötu GusGus við hval. Dýrið dvelur flestar stundir neðansjávar en þegar það kíkir uppá á yfirborðið er það oftast nær með miklum glæsileik, ekki ósvipað nýjasta sköpunarverki GusGus. Ekki er ráðlegt að fara á hlaupum yfir þetta verk því þar er hvert einasta augnablik útfært af alúð og vandvirkni.
Undirliggjandi hugtak plötunnar er grái fiðringur fyrrum Texas-búa sem á yngri árum var vinsæl karlfyrirsæta en fær nú mjög fá verkefni í ókeypis sölubæklingum. Á plötunni er fylgst með honum hverfa inn þýskt næturlíf þar sem hann leitar af lífisins tilgangi.
Staðreyndir um 24/7:
- Platan er tekin upp lifandi í faðmi vestfirskra fjalla, nánar tiltekið í Tankinum við Flateyri.
- Fullkomnu sviðshljóðkerfi var komið fyrir í upptökusal til að ná fram réttum umhverfisáhrifum klúbbsins, þar sem tónlistin á heima og nýtur sín til fulls.
– 24/7 er endurkomuópus söngvarans Daníels Ágústs Haraldssonar inní Gusgus. Hann hefur ekki verið formlegur meðlimur síðan sveitin sendi frá sér This Is Normal.
- Þetta er viðamikill, margslunginn og fléttuþrunginn tónlistarheimur þar sem hlustandinn verður að gefa sig tónlistinni á vald og gangast við þeim skilyrðum sem verkið krefst. Í fimmtíu og sex mínútur.
- Hið nýja, hraustlega og ferska útlit hljómsveitarinnar er nær eingöngu að þakka hinum þýskættaða stílista Klaus Sverrisson frá Wuppertal.
- “Klaus lagði áherslu á að snyrtimennskan yrði ávallt í hávegum höfð” segir ljósmyndarinn og forsprakki hljómsveitarinnar, President Bongo, “allan tímann, jafnt í svefni sem vöku. 24/7! Enda er slagorð fjöllistahópsins: Gusgus alltaf í vinnunni.”
- 24/7 er að mestu leyti samin með aðstoð sérsmíðaðra hljóðgervla (Doepfer A-100 System) frá Bæjaraheimi í Þýskalandi.
- 24/7 er gefin út af Kompakt í Köln í Þýskalandi og er það án vafa ein virtasta dans- og raftónlistarheiminum í dag. Útgáfuna má sannarlega kalla gæðastimpil fyrir Gusgus. Kompakt eru þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir og fyrir að vera útgáfa sem hugsar út fyrir ramma hins oft á tíðum ferkantaða teknóheims. Þetta er mikill fengur á báða bóga.





Recent Comments