Stelpur með Albúm
Það eru engar stelpur í hljómsveitinni Girls og reyndar er sveitin dúett og skipuð þeim Chet White og Christopher Owens (sem einnig er í Holy Shit með Ariel Rosenberg úr Ariel Pink). San Fransisco sveitin vakti örlitla athygli í fyrra með tveimur smáskífum, “Hellhole Ratrace” og “Lust For Life” (ath. ekki Iggy Pop lagið), og nú í september er væntanleg fyrsta breiðskífan sem einfaldlega mun heita Album. Tónlist Girls sækir til seinni 9. áratugs jaðarmúsíkar – hefur jafnvel verið líkt við Galaxy 500 og The Jesus and Mary Chain – og örlar á smá blúsaðri sækadelíu í bland við poppaðan indí töffaraskap.
Það má stríma plötuna þeirra alla hér á síðu útgáfufyrirtækisins True Panther eða bara tékka á smáskífulögunum hér:
Girls – Lust For Life
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Girls – Hellhole Ratrace
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.





Recent Comments