Do, Make, Say og Think
Kandadísku tilraunarokkararnir í Do Make Say Think stefna að nýrri útgáfu á vegum Mekka síðrokksins, Constellation, um miðjan október. Breiðskífan, sem ber nafnið Other Truths, inniheldur einungis 4 lög sem öllu eru þó sirka 10 mínútna langlokur. Other Truths lak á netið í síðustu viku og komu lagaheitin þá í ljós, Do, Make, Say og Think. Þess má geta að Akron/Family ljær DMST rödd sína á plötunni ásamt lítt þekktu kanadísku bandi sem kallast Lullabye Arkestra. Hljómar bara nokkuð vel, hmm?
Do Make Say Think – Think (af Other Truths)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Ég má þó til með að deila með ykkur dásamlegri myndbandsupptöku sem gerð var af Retread Sessions sem sýnir Do Make Say Think leika eitt lag af síðustu breiðskífu sinni, You, You’re a Tender History in Rust, frá árinu 2007.
Do Make Say Think – A Tender History in Rust
Engar tengdar færslur.








Nýlegar Athugasemdir