Ýmislegt frá Brooklyn
Undanfarin ár hefur Brooklyn-hverfi í New York verið sérlega gróskumikill garður áhugaverðrar jarðartónlistar. Til að mynda hafa þó nokkrar af bestu plötum þessa árs einmitt verið ættaðar þaðan: Merriweather Post Pavilion, Veckatimest, Bitte Orca, Songs of Shame. Og það sama má í raun yfirfæra á síðasta ár líka: MGMT, TV on the Radio, Vampire Weekend, Hercules and the Love Affair. Ritstjóri hins breska NME gekk meira að segja svo langt á síðasta ári og sagði Brooklyn áhugaverðasta stað heims í dag tónlistarlega séð. Ég týndi til nokkur Brooklynsk bönd sem rekið hafa á fjöru mína síðustu misseri.
Hljómsveitin The Antlers hlaut mjög jákvætt umtal fyrir EP-plötu sína, New York Hospitals, á síðasta ári. Breiðskífa þeirra sem kom út í síðasta mánuði, Hospice, hefur heldur betur aukið hróður þeirra, og til að mynda splæsti Pitchfork vefmiðillinn ‘Best New Music’-stimplinum á plötuna. Eflaust hafa margir nú þegar uppgötvað bandið en ég verð að undirstrika gæði þessarar plötu. Epískt indírokk er alltof sjaldheyrt!
The Antlers – Sylvia
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Rétt skal vera rétt: Alcoholic Faith Mission er danskt band. Engu að síður er bandið stofnað í Brooklyn og nýjasta breiðskífa þeirra nefnd í höfuðið á Wythe Avenue í Williamsburg þar sem hún er einnig tekin upp. Alcoholic Faith Mission virðist sækja áhirf sín vítt og breytt og minnir óneitanlega á síðari plötur Sigur Rósar á köflum.
Alcoholic Faith Mission – Nut in Your Eye
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Pains of Being Pure at Heart eiga nú þegar eina bestu skífu ársins, sína fyrstu breiðskífu sem kom út í byrjun árs. Bandið er nú snúið aftur með sitt þematíska 90′s indípopp á EP-plötunni Higher Than the Stars.
The Pains of Being Pure at Heart – Higher Than the Stars
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Bandið Dinosaur Feathers er skipuð þremur ungum mönnum sem með hjálp trommuheila og kassagítars framreiða hálf undarlegt indí-popp. Mér dettur helst í hug að líkja þeim við Sung Tungs plötu Animal Collective. Dinosaur Feathers gáfu út stuttskífuna Early Morning Risers í lok ágúst og má niðurhala henni fríkeypis á heimasíðu hljómsveitarinnar.
Dinosaur Feathers – Cold Arabella
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tyondai Braxton er liðsmaður Battles og sonur hins gífurlega afkastamikla fríjazzista Anthony Braxton. Central Market, nýútkominni sólóplötu Tyondai, má kannski stilla upp þarna mitt á milli: tilraunakennt og jazzskotið stærðfræðirokk. Líkt og plötur Battles kemur Central Market út á vegum Warp-útgáfunnar.
Tyondai Braxton – Uffe’s Workshop
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Engar tengdar færslur.








Nýlegar Athugasemdir