Pavement saman á ný?
Sá orðrómur hefur heyrst endrum og eins á síðustu tíu árum að stórindísveitin Pavement kunni að taka upp þráðinn á nýju. Fæstir hafa nú lagt mikla trú í slíkar sögusagnir enda voru stofnendur sveitarinnar, Stephen “SM” Malkmus og Scott “Spiral Stairs” Kannberg, víst langt frá því bestu vinir undir lok ferils hennar. Báðir hafa svo verið að dunda sér við annað síðan; Malkmus gefið út fjórar plötur ásamt The Jicks og á tímabili starfrækti Kannberg hljómsveitina Preston School of Industry og er nú að gefa út sólóskífu í október.
Hin ágæta vefsíða Brooklyn Vegan skúbbaði því í gær að samkvæmt afar áreiðanlegum heimildum væri búið að bóka sveitina á nokkra tónleika í Central Park í New York í september á næsta ári. Vefsíðan spekúlerar svo hvort ekki megi vænta heillar tónleikaferðar frá Pavement og þessir tónleikar séu einungis hluti af þeim. Það er kannski ekki tímabært enn að bóka flug – enda engin opinber yfirlýsing komin – en manni má alltaf dreyma, er það ekki?
Pavement – Texas Never Whispers (af Watery, Domestic EP, 1993)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Pavement – Father To A Sister Of Thought (af Wowee Zowee, 1995)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
—–
edit: Það væri víst óhætt að taka út spurningarmerkið hér í titlinum því Pitchfork hefur fengið það staðfest að sveitin muni spila 21. september 2010 í Central Park … hamingja!
Tengdar færslur:
- Pavement og Gary Young saman á ný
- Spiral Stairs í sólógír
- Beck og Gainsbourg gera video saman
- Björk og Dirty Projectors gefa út plötu saman
- Thom Yorke og Banksy gera myndband saman








Pavement spila á Hróarskeldu ’10 | Rjóminn on ágúst 12th, 2010
[...] spila á Hróarskeldu ’10 ShareEins og greint var frá alls ekki fyrir svo löngu, þá er ofur-indí-bandið Pavement að skipuleggja endurkomu sínu. [...]