Sólósíngull frá Julian Casablancas
Julian Casablancas, forsöngvari The Strokes, sendir nú á haustdögum frá sér sína fyrstu sólóplötu sem nefnist Phrazes for the Young. Nú var fyrsti síngullinn af skífunni að koma í hús og heitir lagið “11th Dimension” en í því má heyra Julian feta á nokkuð aðrar slóðir en með sveit sinni forðum. Meira fer fyrir hljóðgervlum en gíturum og dansvætt elektróbítið er nokkuð frábrugðið rokk revivali The Strokes. Hvort sem fólk verður spennt eða óttaslegið við þessa lýsingu þá er engin ástæða fyrir öðru en að tékka á hvernig lagið hljómar…
Julian Casablancas - 11th Dimension
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:
- Jólalag frá Julian Casablancas
- Julian Casablancas – Phrazes For The Young
- Ný lög frá Arcade Fire
- Söngvari Interpol gefur út sólóplötu
- Laugardagsþrenna








Nýlegar Athugasemdir