B.sig verður Monotown

MonotownEitt allra besta tónleikaband landsins, B.sig, heitir nú Monotown.

Undanfarnar vikur hafa piltarnir í Monotwon verið að taka upp kynningarefni fyrir sveitina í Stúdíó Sýrlandi með hjálp frá sjálfum Adda 800.

Til að gefa aðdáendum sínum smjörþef af því sem koma skal undir hinu nýja nafni hafa Monotown sett þrjú lög á Myspace og Facebook síður sveitarinnar. Þessi lög eru eingöngu demo og því ekki um fullunnið efni að ræða en ættu að gefa góða hugmynd um hvert sveitin stefnir tónlistarlega.

Monotown mun spila á Reykjavík Roundup á Sódóma á laugardaginn klukkan 21:45.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Nóra – Plötuútgáfa og Partý!
  2. Agent Fresco gefa lag á gogoyoko
  3. Nóra með ókeypis lag og jólatónleika
  4. Frí tónlistarveisla á Faktorý fimmtudagskvöldið 22. júlí.
  5. Coral langt komnir með nýja plötu

Tjáið ykkur um málið