Broadcast and The Focus Group – Investigate Witch Cults of the Radio Age
Einkunn: 3.0
Útgáfuár: 2009
Útáfa: Warp
Ég fæ alltaf dálítinn spennufiðriðng þegar ég frétti af samstarfi milli tveggja hljómsveita eða listamanna sem ég fíla, en að sama skapi á ég það til að verða ansi oft fyrir vonbrigðum því slíkt samkrull heppnast ekki alltaf eins vel og maður ímyndaði sér. Nýlega fréttist af samstarfsplötu Broadcast og The Focus Group og þótti mér þær fréttir tilefni til tilhlökkunnar. Þar ræður að sjálfsögðu mestu að fjögur ár eru síðan Broadcast sendi frá sér plötuna Tender Buttons – sem líklega er með mest spiluðustu plötum áratugarins hjá yðar einlægum – og því biðin eftir nýju efni orðin ansi löng. Í fyrra kom reyndar stuttskífa með samstarfi Broadcast og Atlas Sound, uppfull af misspennandi hljóðtilraunum, og var sú útgáfa ekki upp á marga fiska.
Þó að síðasta samstarfsverkefni sem Broadcast tók þátt í hafi ekki verið mjög spennandi er eitthvað við samstarf sveitarinnar við The Focus Group sem fyllti mann von um betri útkomu. Platan heitir hinu stutta og laggóða nafni Broadcast and The Focus Group Investigate Witch Cults of the Radio Age og þrátt fyrir að útgáfufélagið Warp kalli skífuna mini-LP þá er hún tæpar 47 mínútur að lengd.
Sveitirnar tvær eru tengdar sterkum böndum, en Julian House (eini meðlimur The Focus Group) hefur verið hirðhönnuður Broadcast og gert nærri öll plötuumslög sveitarinnar frá upphafi. Hljóðheimur sveitanna hefur einnig verið svipaðar og er litaður af retró-fútúrískum hljóðmyndum sem minna á gamlar sci-fi myndir og sækadelískar hljóðtilraunir 7. áratugarins. Broadcast hefur þó ætíð haft lagasmíðar í forgrunni og skreytt þær með áhugaverðum hljóðheimi á meðan Focus Group hefur sleppt sér í tilraunamennskunni og hljóma plötur hans líkt og ævintýraferð í heim furðuhljóða – sem er vissulega skemmtilegt en að sama skapi þreytandi til lengdar (sjálfur á ég erfitt með að hlusta heilar Focus Group skífur í einum rikk – mæli þó með We Are All Pan’s People (2007) fyrir áhugasama).
Broadcast – Look Outside (af The Noise Made By People, 2000)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Focus Group – Salty Sun Tales (af We Are All Pan’s People, 2007)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Þessi samstarfsskífa hljómar svo í reynd eiginlega nákvæmlega eins og maður hafði ímyndað sér – akkúrat mitt á milli sveitanna tveggja – og þar sem hljóðheimur þeirra er skyldur virkar það bara nokkuð vel. Flest af lögunum tuttugu og þremur eru stutt og tilraunakennd en renna saman í eitt allsherjar furðurferðlag um ævintýralega og á tíðum draugalega hljóðheima en Broadcast liðar sjá um að halda ferðalaginu saman með stöku laglínum hér og þar. Platan er því töluvert tilraunakenndari en flestar útgáfur Broadcast en mun lagvissari en það sem Focus Group hefur síslað svo jafnvægið á milli sveitanna helst nokkuð vel. Helst saknar maður að heyra ekki meira í Trish Keenan, söngkonu Broadcast, en rödd hennar fellur ætíð fullkomnlega að hinum sérstæðum tónum sveitarinnar.
Platan virkar því nokkuð vel og er uppspretta óteljandi skemmtilegra hljóðpælinga þó að hún sé hvergi nærri eins sterk og þegar Broadcast er á ferðinni eins síns liðs. Investigate Witch Cults of the Radio Age er þó ágætis búbót á meðan beðið er eftir næsta (vonandi) snilldarverki sveitarinnar – sem samkvæmt heimildum er væntanlegt á fyrri hluta næsta árs.
Broadcast and The Focus Group – The Be Colony
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Plötuna má nálgast stafrænt í vefverslun iTunes og hjá Bleep.com en útgáfa á vínyl og geilsadiski kemur út 26. október.
Tengdar færslur:
2 Athugasemdir
Pétur Valsson on nóvember 10th, 2009
tja, mér finnst 3 bara alveg prýðiseinkunn – enda finnst mér platan nokkuð góð. það er vart annað hægt en að bera plötuna bæði við aðrar skífur broadcast/focus group sem og aðra tónlist kemur út.
annars þá mæli ég einnig með nýju túr-skífunni frá broadcast, mother is the milky way, sem mér þykir nú betri en þessi samstarfsplata … svo er bara að vona að væntanleg breiðskífa slái báðum plötunum við








dúdírúddírú on nóvember 10th, 2009
Góður dómur. Hins vegar full lág einkunn. Þó platan sé ekki að jafnast á við sumt af hinu átpúttinu hjá Broadcast þá verður það ekki af þeim tekið að þetta er afspyrnu góð plata og frekar ósanngjarnt að bera þau svona við sjálfa sig.