Réttir – Fimmtudagur
Réttir – Reykjavík Round Up / Fimmtudagur
Annar í Réttum var settur hjá mér af strákunum í Sudden Weather Change. Þeir stigu á svið á Sódóma rétt rúmlega níu. Að vanda stóðu þeir fyrir sínu, organdi gítarar keyrðir hvorn ofan í annan og þeir Logi, Benni og Beggi æptu af öllum lífs og sálar kröftum. Sudden fluttu eitt nýtt lag (The Field, heyrðist mér þeir nefna gripinn) og svo tileinkuðu þeir vini vors og blóma, Davíð Oddssyni, eitt lag. Frábærir tónleikar og Sudden-liðar sýndu það og sönnuðu hvað þeir eru stórkostlegt tónleikaband!
Þegar Sudden hafði lokið sér af, rölti ég yfir á Batteríið þar sem danska hljómsveitin The State, The Market and The DJ átti að byrja að spila klukkan tíu. Því seinkaði reyndar um hálftíma en ég drap tímann yfir einum bjór. Danirnir eru greinilega færir músíkantar en algjörlega stefnulausir sem band. Hvert lag hljómaði gjörólíkt því fyrra svo að ég fékk á tilfinninguna að þarna væru fjórar hljómsveitir að spila en ekki band með fjórum meðlimum. Á köflum flott og kvartettinn mjög einlægur í flutningi sínum.
Þar sem að seinkunin á Batteríinu hafði sett planið í uppnám varð ég að drífa mig yfir á NASA. Þar var Megas á sviði með hinum mögnuðu Senuþjófum. Meistarinn var flottur að vanda! Ég er alltaf jafn þakklátur að fá að vera vitni af þessari frábæru endurkomu hans í tónlistarflóruna.
Hjálmar voru svo síðastir á svið. Lopa-reggí strákarnir náðu heldur betur að fylla NASA af sólskini. Þeir léku lög af öllum fjórum plötum sínum og salurinn söng með af álíka mikilli innlifun og bandið sjálft. Frábær stemning – stórgóðir tónleikar!
Kvöldið endaði ég svo í sveittri hip-hop stemningu á Jacobsen þar sem hinir goðsagnakenndu Forgotten Lores kváðu rímur og spunnu þétta takta. Gestir virtust skemmta sér vel rétt eins og bandið sjálft. Það var þó afar notalegt að kæla sig í kjallaranum þar sem Beatmakin Troopa framreiddi ljúfa tóna.
Annar í Réttum var að mestu vel heppnaður fyrir utan smá tafir á dagskrá. Það er þó ljóst að föstudags- og laugardagskvöld líta best út á blaði og því að vona að stemningin haldi áfram að vera vinaleg og kreppuvæn.
- Guðmundur Vestmann
Í kvöld mælir Rjóminn með:
Á NASA
02.00 Pedro Pilatus & Bear Hug
01.00 FM Belfast
Á Sódóma
02.15 Swords of Chaos
01.00 Ensími
00.00 Kimono
23.15 Skakkamanage
22.30 Miri
Á Batteríinu
00.45 Bodebrixen (DK)
00.00 Sometime
Á Jacobsen
múm (dj set)
Dagskránna í heild má sjá hér.
Kimono – Black
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Pedro Pilatus – Stella
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Engar tengdar færslur.
3 Athugasemdir
Egill Harðar on október 3rd, 2009
Þetta varð eitthvað endasleppt hjá okkur þar sem við gátum ekki séð nóg þessi kvöld sökuum anna og/eða fjölskylduskuldbindinga.
Haukur SM on október 8th, 2009
Aular.








Baldvin Einarsson on október 2nd, 2009
nenntuð þið ekki út á föstudag og laugardag? Á ekki að klára það sem byrjað er á?
kveðja
baldvin