Þrjú ný Sufjan Stevens lög

by Pétur Valsson on september 30, 2009

Fjölmargir eru líklega orðnir langeygðir eftir nýju efni frá indíeftirlætinu Sufjan Stevens. Sú var tíðinn að hann sendi frá sér plötur árlega uppfullar af allskyns skemmtilegum lögum en síðustu ár hefur verið fremur hljótt um hann. Nú virðist vera að færast smá líf í kappann að nýju en í október koma tvær skífur út frá honum, Run Rabbit Run (sem er hálfgerð endurgerð af Enjoy Your Rabbit (2001)) og hljómsveitarsvítan The BQE. Aðdáendur Sufjans bíða þó líklegast mest eftir næstu „hefðbundnu“ plötu kappans og þó að engin formleg tilkynning um útgáfu hafi borist er ástæða til þess að setja sig í tilhlökkunargír. Í síðustu viku debutaraði Sufjan nefnilega nokkur ný lög á tónleikum vestan hafs og má því ætla að hann sé langt kominn með næstu hljóðversskífu. Að sjálfsögðu var einhver snjall áhorfandi sem tók upp lögin nýju – og þau lofa bara nokkuð góðu…

Sufjan Stevens – There’s Too Much Love (Live)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sufjan Stevens – Age Of Adz (Live)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Sufjan Stevens – Impossible Souls (Live)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Og tónleikavideo af lögunum fyrir þá sem vilja:

Tengdar færslur:

  1. Sufjan Stevens – The Age of Adz
  2. Hlustaðu á nýju EP-plötuna frá Sufjan Stevens
  3. Beach House þekur Queen
  4. Ný lög frá Arcade Fire
  5. Nýtt erlent

One comment

Veiiiii ! Búin að bíða eftir þessu lengi. Sæt myndin af honum líka!

by Hildur Maral Hamíðsdóttir on Miðvikudagur 30. september 2009 at 13:35:19. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.