Hvalir í lausamennsku

Hljómsveitin Freelance Whales er víst ekki nema um ársgömul en er þegar farin að vekja athygli á sér meðal tónlistaráhugamanna New York borgar, ekki síst vegna tónleika sveitarinnar sem þykja bera af. Nú nýlega gáfu Freelance Whales sjálfir út sína fyrstu breiðskífu, Weathervanes, sem strax við fyrstu hlustun stimplar sig inn sem ein af áhugaverðustu frumburðum ársins. Tónlist sveitarinnar er þægilegt og melódískt indípopp með harmónerandi samsöng og fjölbreyttri hljóðfæraskipan, en liðsmönnum tekst einkar vel að tvinna saman hljóðgervla og órafmögnuð hljóðfæri. Weathervanes er enn sem er víst bara fáanleg stafrænt á iTunes en fær vonandi víðtækari dreifingu bráðum. Tékkum á nokkrum lögum…

Freelance Whales – Generator ^ First Floor

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Freelance Whales – Starring

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Freelance Whales – Generator ^ Second Floor

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Þeyttur Rjómi fyrir helgina
  2. Ný lög frá Arcade Fire
  3. Nýtt lag frá Rökkurró
  4. Maximo Park gefur út fría remix plötu
  5. Nýtt myndband frá CocoRosie

Tjáið ykkur um málið