gogyoko kynnir: Grapevine Grand Rock #10
Fréttatilkynning
Iceland Airwaves upphitun
Tíunda, og langt því frá síðasta gogoyoko Grapevine Grand Rock kveld fer fram föstudaginn 9. október n.k. á Grand Rokk við Smiðjustíg. Að þessu sinni koma fram sjentilmannarokksveitin Jeff Who?, hið hrjúfa tríó Morðingjarnir, Feldberg, sem er samstarfsverkefni Eberg og söngkonunnar Rósu Ísfeld og síðast en ekki síst, Mr. Fogg, sem er erlendi gestur kvöldsins, en hann verður hérlendis á vegum Ólafs Arnalds, en þeir ku vera að vinna saman að tónlistarsköpun. Hljómleikarnir hafa aukinheldur tvennan tilgang; að hita upp fyrir væntanlega Iceland Airwaves hátíð, og að fagna útgáfu nýs Iceland Airwaves þemaðs tölublaðs Reykjavík Grapevine.
Húsið opnar kl. 22:00 og aðeins kostar kr. 1.000 inn
www.myspace.com/mrfoggisapopstar
Tengdar færslur:
- gogoyoko kynnir: Grapevine Grand Rock #7
- Grapevine Grand Rock
- Snorri Helgason, Lights on the Highway, Prins Póló og Markús Bjarna á Grapevine Grand Rock #11
- Grapevine Grassroots Festival
- Grapevine Grassroots #16








Nýlegar Athugasemdir