Airwaves: The Drums
Eitt af áhugaverðari böndunum á Airwaves í ár er Bandaríska sveitin The Drums sem á ættir sínar að rekja til Flórída en hefst nú við í Brooklyn. Kjarni sveitarinnar eru þeir Jonathan Pierce og Jacob Graham sem hittust í sumarbúðum sem krakkar og deila áhuga á brimbrettum og bresku póst-pönk sveitinni The Wake. Þessi áhrif leyna sér ekki í tónlist The Drums því hún hljómar dálítið eins og ef einhver af sveitunum hjá Factory Records í upphafi 9. áratugarins hefðu flutt frá Bretlandi og til sólríkra stranda og stundað öldurnar að kappi. The Drums gaf út fyrstu EP skífu sína, Summertime!, nú um miðjan september og eru að vinna að fyrstu breiðskífunni sem væntanlega kemur út innan skamms, en lagið “I Felt Stupid” er líkast til forsmekkurinn að því sem koma skal.
The Drums – I Felt Stupid
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Drums – Let’s Go Surfing (af Summertime! EP)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Drums - Don’t Be a Jerk, Jonny (af Summertime! EP)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
The Drums – Submarine (af Summertime! EP)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Þeir sem vilja svo kynna sér sveitinna betur geta halað frítt niður stafrænu smáskífunni Let’s Go Surfing - uppfullri af allra handa remixum – á heimasíðu Rcrd Lbl.
The Drums spila í Hafnarhúsinu föstudaginn 16. október kl. 20.50





Haukur SM on október 11th, 2009
Pétur búinn að vera duglegur! Þumall upp!