Airwaves: Kings of Convenience

kingsHina norsku Kings of Convenience þarf varla að kynna fyrir Íslendingum. Annar helmingur sveitarinnar, Erlend Oye, sótti landið heim árið 2006 og spilaði þá á Airwaves með hinni sveit sinni, The Whitest Boy Alive og hlaut lofsamlega dóma fyrir frammistöðu sína. Kings of Convenience gáfu út sína fyrstu plötu árið 2001, remix útgáfu af henni stuttu síðar og svo aðra stúdíóplötu, Riot on an Empty Street, árið 2004. Það var svo ekki fyrr en fyrir nokkrum dögum að ný plata með sveitinni leit dagsins ljós, en hún ber heitið Declaration of Dependence og lofar vægast sagt góðu við fyrstu hlustun. Sem fyrr eru ljúfar melódíur í forgrunni, enda þeir félagarnir undrabörn á sviði þess að skapa stemningsmúsík. Þeir ættu því að verða notalegir, tónleikarnir með Kings of Convenience, en þeir fara fram í Fríkirkjunni föstudaginn 16.október kl. 22:00. Eins og gefur að skilja komast líklega færri að en vilja inn í Fríkirkjuna vegna takmarkaðra sæta og því verður að nálgast miða á tónleikana fyrirfram, eða í kjallara Skífunnar á Laugavegi (þar sem upplýsingamiðstöð Airwaves er til húsa) kl 12:00 á föstudag. Við mælum hiklaust með því að fólk bítist um miða, enda Fríkirkjan með huggulegri tónleikatöðum borgarinnar og Kings of Convenience með mest spennandi nöfnum hátíðarinnar í ár.

Hér má svo sjá og heyra nýtt lag af plötunni Declaration of Dependence – njótið!

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 0.0/5 (0 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +2 (from 2 votes)
pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið