Feldberg
Dúettinn Feldberg er skipaður þeim Einar Tönsberg, betur þekktum sem Eberg, og söngkonunni Rósu Birgittu Ísfeld. Tónlistaráhugamenn kannast eflaust við lögin “Don’t Be a Stranger” og “You & Me” en þau hafa hljómað á öllum betri útvarpsstöðvum landins en flestir kannast þó við hið fyrrnefnda úr auglýsing fyrir ónefnt símafyrirtæki hér í borg.
Tvíeikið stefnir nú á útgáfu breiðskífu í fullri lengd, sem áætlað er að komi í búðir í lok þessa mánaðar, og er nýtt lag af henni þegar komið í umferð á Netinu. Heitir það “Dreaming” og hljómar eitthvað á þessa leið:
Felberg – Dreamin
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Laginu má líka hala niður að kostnaðarlausu á Tónlist.is í eina viku.
Þess ber einnig að geta að Feldberg mun koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni á laugardagskvöldið á Nasa.





Recent Comments