Airwaves: Fimmtudagur

IA_logo_Social_MedRes-300x300Þið hafið nú væntanlega heyrt þetta með að fimmtudagur sé hinn nýji föstudagur. Hvort það sé algilt skal nú ekki segja, en á Airwaves gildir þetta lögmál. Á fimmtudaginn var bærinn iðandi af lífi, uppástrílaðar stelpur á sveimi um miðborgina, þyrstir tónlistarunnendur að drekka dósabjór úti á götu og tónar bárust út úr annarri hverri búð og veitingastað.

DSC_0318Fimmtudagurinn var hafinn og eftir að hafa fengið sér nokkra bjóra í heimahúsi fóru Rjómaliðar á stjá til að taka þátt í hátíðinni. Rökkurró hófu leikinn í Hafnarhúsinu klukkan hálf átta. Þetta var nú hálf undarlegt val á stað fyrir bandið, enda kommentaði söngkonan á það sjálf: sagðist hafa nýlokið við að spila í minnstu plötubúð heims, 12 Tónum. Hverju sem því líður naut tónlist Rökkurróar sér vel í hljómmiklum salnum. Hljómsveitin flutti einungis nýtt efni (eða a.m.k. óútgefið) og lofar það skrambi góðu! Hildur Kristín syngur að vanda alveg eins og engill og tónar vel við tilfinningaþrungna músíkina. Meðlimir bandsins voru iðnir við að skiptast á að spila á hin ýmsu hljóðfæri og var ekki að heyra að nein falsnóta væri slegin. Leiðinlegt að fleiri skyldu ekki koma og sjá, því tónleikarnir voru mjög flottir og framkoman sérstaklega einlæg og hrífandi.

Eftir smá matarpásu komum við okkur aftur á Listasafn Reykjavíkur. Þar voru Choir of Young Believers rétt byrjaðir. Fyrir sveitinni fór vel fúlskeggjaður söngvari sem á milli laga talaði með þeim þykkasta danska hreimi sem heyrst hefur norðan Himmelbjerget. Lögin söng hann hins vegar á ensku og lét rödd hans mun betur í eyru þá. Rjóminn hafði aðeins tékkað á tónlist sveitarinnar í netheimum og líkað ágætlega en á tónleikunum vantaði mikið af þeirri fyllingu sem gefið hafði músikinni líf og áttu lögin það til að týnast í risavaxnu Hafnarhúsinu. Þegar líða tók á tónleikna færðist meira líf í sveitina og náði hún tónleikagestum á sitt band með hinu grípandi ” Action/Reaction”. Undir blálokin örlaði á póstrokkískum stemmum sem enduðu tónleikana vel.

When Saints Go Machine stigu síðastir á stokk í Hafnarhúsinu og voru með einkennilegri tónleikaupplifunum Rjómans í lengri tíma. When Saints Go Machine fetuðu nefnilega þann þrönga stíg að vera senn yfirmáta tilgerðarlegir en jafnframt áhugaverðir og á köflum bara nokkuð góðir. Söngvari sveitarinnar tók athyglina frá sveitinni til að byrja með, stóð fremur hreyfingarlítill, dillaði sér hálf vandræðalega og virtist í hróplegu ósamræmi við hljómsveitina. Þegar sveitin komst á flug náði hún áhorfendum á sitt band og bjó til hina fínustu stemmningu.

4015002475_67ff425a88Næsta á dagskrá var það ameríski kvartettinn Kidcrash. Við vissum í raun fátt um bandið: hart rokk hafði einhver sagt, Airwaves sögðu ‘screamo/emo’, við ákváðum nú samt að mæta og bera sveitina augum. Það er óhætt að segja að bandið kom eins og spark í punginn: með tíðum kaflaskiptum, flæktum og þvældum gítarlínum og þremur söngvurum sem æptu hvor ofan í annan þá virkaði tónlist Kidcrash eins og þéttur og hávær hljóðmúr sem hent var yfir mann. Einhver benti nú reyndar á að það skipti ekki máli hver söng, því þeir hljómuðu allir eins. Við viljum þó meina að þetta hafi snúist um úthald: svona keyrsla og kraftur kemur ekki bara af sjálfu sér enda draup svitinn að meðlimum bandsins undir lok tónleika. Tónleikar Kidcrash voru óvæntasti glaðningur það sem af er að hátíðinni. Þar hafið þið það!

ErnirAirwavesD212Þegar litið var inn á Batteríið var Sykur að trylla lýðinn og virtist hver maður á staðnum vera í svitnandi stuði undir Sykurtónunum. Þó að Rjóminn hafði aðeins náð síðasta lagi hljómsveitarinnar var nokkuð ljóst að Sykur er um þessar mundir að taka við keflinu sem heitasta danssveit landsins. Það er óhætt að mæla með tónleikum sveitarinnar fyrir þá sem þyrstir í sykrað stuð.

Who Knew svo lokuðu kvöldinu á Sódóma. Eftir góða pásu á tónleikahaldi virðist bandið vera að koma tvíelft til leiks. Það fór nú framhjá mér hvort þeir mættu fullklæddir á tónleikana en eftir tvö-þrjú lög voru þeir a.m.k. allir orðnir hálf berrassaðir á sviðinu. Það var gleðin og krafturinn sem skein af bandinu sem hélt tónleikunum uppi. Who Knew eiga nokkra ansi góða slagara og skiluðu þeir sínu af stakri príði. Sveitt, hresst og kröftugt, svona eins rokk og ról einfaldlega á að vera!

Fimmtudagurinn heppnaðist bara vel. Erlendir listamenn þessa kvölds féllu töluvert betur í kramið hjá Rjómanum en þeir sem léku kvöldið áður. Bið í röðum var í lámarki og gestir voru í góðum gír. Bjórinn þó full dýr í Hafnarhúsinu (33 cl. dós =600 kr.)

- Guðmundur Vestmann & Pétur Valsson.

Myndir:

Rökkurró, Vasilis Panagiotopoulos (c)

Kidcrash, Guðrún Helga Halldórsdóttir (c)

Sykur, Ernir Eyjólfsson (c)

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Airwaves 09 að skýrast
  2. Enn bætist við á Airwaves 2010
  3. Hurts á Airwaves
  4. Airwaves 2010
  5. Robyn á Airwaves

Ein athugasemd

Iceland Airwaves 2009 | Rjóminn  on ágúst 12th, 2010

[...] Fimmtudagur – 15. okt [...]

Tjáið ykkur um málið