Ljósvakaljóð – kallað eftir stuttmyndum og frumsömdum handritum
Fréttatilkynning
Hin sívinsæla stuttmyndahátíð ungs fólks verður haldin 5. nóvember næstkomandi í Norræna húsinu Keppt verður um bestu stuttmyndina, besta frumsamda handritið og í annað skipti á Íslandi verður keppt um bestu pitch-hugmyndina en sú keppni sló eftirminnilega í gegn þegar hún var haldin í fyrsta skipti í fyrra.
Við köllum eftir verkum fólks á aldrinum 15 – 25 ára en umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember næstkomandi.
Keppnisflokkar:
Stuttmyndakeppni
Þið sem eruð 15 – 25 ára og ætlið að taka þátt; athugið að innsendar myndir mega ekki vera lengri en 20 mínútur og verða að vera tveggja ára eða yngri.
Verðlaun fyrir bestu stuttmyndina: 50.000 kr.
Pitch-keppni
Eftir æsilegan áhuga á pitch-keppninni sem haldin var í fyrsta skipti í fyrra -verður aftur keppt í góðum hugmyndum að kvikmyndum. Keppendur mæta í Norræna húsið og útlista hugmynd sína fyrir áhorfendur og þjóðþekkta fagaðila sem skipa dómnefnd hátíðarinnar. Á móti fá keppendur gagnlegar athugasemdir dómnefndar og uppbyggilega gagnrýni.
Verðlaun fyrir bestu pitch-hugmynd: 5.000 kr., USB-lykill og tölvutaska.
Handritakeppni
Sérstaklega haldin fyrir einstaklinga sem horfa á bíómynd og hugsa; Ég hefði getað skrifað miklu betra handrit! Handritakeppni Ljósvakaljóða er haldin í fyrsta skipti í ár og mega frumsamin handrit keppenda ekki vera lengri en 10 blaðsíður hvert eða eldri en tveggja ára.
Verðlaun fyrir besta frumsamda handritið: 15.000 kr.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér keppnina og skrá sig á heimasíðu Ljósvakaljóða, www.ljosvakaljod.is
Nánari upplýsingar veita Björg Magnúsdóttir, verkefnisstjóri s. 865-6750
Rúnar Ingi Einarsson, framleiðandi s. 697-7447
Engar tengdar færslur.








Nýlegar Athugasemdir