Gus Gus frumsýna nýtt myndband

Fréttatilkynning

Gus Gus dj sett með President Bongo

Thin IceNæstkomandi laugardagskvöld, 24. október, munu Gus Gus frumsýna glænýtt myndband við “Thin Ice” á Kaffibarnum kl. 21:00.  “Thin Ice” er önnur smáskífa hinnar rómuðu sjöundu breiðskífu sveitarinnar, 24/7.  Breiðskífan hefur fengið góðar móttökur, hérlendis sem og erlendis.

Myndbandið var tekið upp í Fellahverfinu í Breiðholti og er leikstýrt af þeim Heimi Sverrissyni og Jóni Atla Helgasyni.  Þeir leikstýrðu einnig síðasta myndbandi Gus Gus við “Add This Song” sem hefur vakið stormandi lukku víða um heim.  Búast má við að “Thin Ice” verði enginn eftirbátur. Meðal leikenda eru auk Gus Gus nemendur úr Fellaskóla og Breiðholtsbúar.

Gus Gus eru nýkomnir af tónleikaferð um Evrópu og luku henni með trompi fyrir troðfullu húsi á Nasa síðastliðið sunnudagskvöldið og slaufaði á sama tíma vel heppnaðri Iceland Airwaves 2009.  Fyrir tónleikana stóð til að frumsýna myndbandið en af því varð ekki sökum tæknilegra atriða – tónleikarnir voru engu að síður einstakir í sinni röð.

Í kjölfar frumsýningarinnar mun sjálfur President Bongo þeyta skífum til miðnættis.

Fordrykkur þar til byrgðir þrjóta.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: 4.0/5 (1 vote cast)
VN:F [1.8.2_1042]
Rating: +1 (from 1 vote)
Gus Gus frumsýna nýtt myndband4.051pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið