Mountain Man

Fyrir ekki alls löngu rakst ég á hljómsveitina Mountain Man á ferðum mínum í netheimum. Sveitina skipa þrjár ungar konur, þær Amelia Meath, Molly Sarle og Alex Sauser-Monnig, sem syngja saman og af til heyrist í gítarslætti Alex. Það þarf ekki meira til til þess að skapa heillandi stemmningu en tónlistin ætti að höfða til þeirra sem gaman hafa feminísku þjóðlagastuði, a la Joanna Newsom, Sibylle Baier og Vashti Bunyan.

Mountain Man gaf út sjö tommu í fyrra með nokkrum lögum og geisladisk með demóum fyrr á þessu ári til að selja á tónleikum. Það má nálgast lögin af disknum á heimasíðu hljómsveitarinnar, frítt fyrir þá sem nægir lág gæði og fyrir smá lágmarksgjald vilji menn betri hljómgæði. Lesendur Rjómans geta lagt eyru að nokkrum hljóðdæmum hér:

Mountain Man – Animal Tracks

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Mountain Man – Dog Song

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Mountan Man – Sewee Sewee

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

pixelstats trackingpixel

Tengdar færslur:

  1. Frumburður Mountain Man
  2. Tiger Mountain Peasant Song
  3. Ný lög frá Arcade Fire
  4. Made In Iceland III
  5. Nýtt lag frá Rökkurró

Tjáið ykkur um málið