Painted Stones

Því miður virðist Áströlsk tónlist alltof sjaldan berast milli eyrna manni en þaðan hafa nú margar gæðasveitirnar komið á undanförnum árum (þó vel hefðum við hérna megin á hnettinum viljað heyra meira). Ég sperrti eyrun strax þegar ég heyrði í sveitinni Painted Stones nýlega og vakti það svo ekki síður áhuga minn að sveitin kemur úr fjöllunum bláu nærri Sydney, en hefst reyndar nú við í stórborginni. Félagarnir Peter K Bryant og Oska Trouble skipa sveitina og flytja einstaklega grípandi folk-skotna indímúsík sem gleðja ætti jafnvel helstu fýlupúka. Rjóminn hefur tvö helvíti fín demólög undir höndum frá Painted Stones og svo má heyra fleiri lög á mæspeisinu, en plata frá sveitinni mun víst vera væntanleg innan skamms.

Painted Stones – Noble Times

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Painted Stones – The Coats Can’t Write The Poetry Of Times

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bookmark and Share
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: 5.0/5 (3 votes cast)
VN:F [1.8.5_1061]
Rating: +4 (from 4 votes)
Painted Stones5.053pixelstats trackingpixel

Tjáið ykkur um málið