Útgáfutónleikar Bróður Svartúlfs
Alveg frá því að Bróðir Svartúlfs sigraði Músíktilraunir í mars á þessu ári hafa tónlistarunnendur á Íslandi (og víðar) beðið með hjartað í buxunum eftir plötu frá bandinu. Strákarnir hafa unnið dag og nótt að því að klára frumburðinn, sem er samnefndur sveitinni. Platan er 6 laga stuttskífa og var tekin upp að mestu í Sundlauginni, en eitt lag í Tankinum á Flateyri. Í tilefni af því að skífan er nú loksins, loksins tilbúin ætla Svartúlfur og bræður hans að heiðra Reykvíkinga með nærveru sinni. Þeir munu spila á Sódóma Reykjavík, laugardaginn 31.október ásamt Múgsefjun og Agent Fresco.
Húsið opnar klukkan 22:00 og hefjast hljómleikarnir stuttu seinna, aðgangseyrir er litlar 500 krónur og verður platan að sjálfsögðu til sölu á útsöluprís.
Platan er einnig fáanleg hjá gogoyoko
www.myspace.com/brodirsvartulfs
www.myspace.com/agentfresco
www.myspace.com/mugsefjun
www.okidoki.is
Tengdar færslur:
- gogyoko kynnir: Grapevine Grand Rock #10
- At Dodge City fara Norður
- Útidúr, Miri og Helgi Valur halda stórtónleika
- Styrktartónleikar á Batteríinu
- Fyrsta lag Krónu gefið út á Þjóðhátíðardaginn








Nýlegar Athugasemdir